SNILLINGUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Fyrsti hringurinn í þriðja hluta tímatökunnar hjá honum var alveg magnaður það má gera því skóna að hefði hann ekki gert smá mistök í þriðju síðustu beygju og svo aftur í þeirri síðustu eru allar líkur á því að hann hefði verið á undir 1.23 en svona er alltaf hægt að segja en hann keyrði alveg á mörkunum allan hringinn og það mátti ekkert útaf bera til að illa færi.  Hann sannar það drengurinn að þarna er á ferðinni framtíðar meistari ef ekki þetta árið þá seinna.  Red Bull-liðið átti hreinlega tímatökuna spurningin var aðeins hvort það yrði Vettel eða Webber sem tækju pólinn Alonso gerði aðeins atlögu en hann var ekki þesslegur að hann væri nein alvöru ógn.  Helstu vonbrigðin voru að sjálfsögðu að Hamilton skyldi ekki komast í síðustu umferðina en hann endaði í 11 sæti. menn vildu kenna gærdeginum um og vildu meina að hann hefði bara átt "slæman" dag.  Það var svolítið "furðulegt" að ástæðan fyrir slæmu gengi Jarno Trulli var að ökumannsætið brotnaði, ekki alveg sú "bilun" sem má gera ráð fyrir í formúlu1 bíl.
mbl.is Vettel á ráspól í Melbourne
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Arnar Magnússon

Vettel átti reyndar bara brautina í dag, og það verður virkilega gaman að fylgjast með, hvernig honum gengur í fyrramálið. Finnst þér hinsvegar ekki svolítið merkilegt að Schumi skuli aftur ná sjöunda sæti í tímatökunni, mér finnst að ef hann nær því líka í þriðju keppninni, þá sé hann búinn að vinna það til eignar!   Hehehe   Kv. Siggi Magg.

Sigurður Arnar Magnússon, 27.3.2010 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband