GLEÐILEGT SUMAR!!!!!!!!!!!!!!!!!

Njótum  birtunnar og góða veðursins, grillum Hrefnu og hval og vonandi færir sumarið okkur aukna bjartsýni og velgengni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Gleðilegt sumar gamli fauskur, það er erfitt að njóta veðursins því það er svo nístingskalt hér í Hafnarfirði. Held ég dúði mig bara vel og dóli vestur í bæ að hitta hann gamla minn, sem senn verður 91 árs, ekki lélegt það.

Baldur Hermannsson, 22.4.2010 kl. 14:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við megum nú þakka fyrir ef við náum svo háum aldri Baldur miðað við okkar lífsstíl, sem ég myndi samt halda að væri til mikillar fyrirmyndar.  Eru ekki prófin að bresta á hjá ykkur????

Jóhann Elíasson, 22.4.2010 kl. 15:19

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Jú þetta er aðal streitutíminn í skólanum. Verri en desember vegna þess að nú eru litlu greyin orðin alveg dauðuppgefin eftir veturinn og vilja komast út í sumarblíðuna og leika sér við íþróttir, ferðalög, ástir og störf. En sá gamli var hress að vanda og sagði okkur miklar sögur af kvennablóma sem hann hafði kynnst um ævina.

Baldur Hermannsson, 22.4.2010 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband