ÞETTA ER BARA BYRJUNIN!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Og ætti að vera nægt tilefni til þess að ESB sinnar hugsi aðeins sinn gang.  Það er alveg víst að ESB á eftir að koma fram með fleiri "kröfur" að við verðum að hætta hinu og þessu ef við ætlum inn í ESB.  VÆRI EKKI AFFARASÆLAST FYRIR OKKUR AÐ DRAGA UMSÓKNINA TIL BAKA, EINS OG MEIRIHLUTI ÞJÓÐARINNAR VILL GERA OG HÆTTA ÞESSU BJÖLLUATI???????????????
mbl.is Ísland hætti hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafið þið nokkurntíma hugsað út í það, að kýrnar á Íslandi eru svo litlar og mjólka það lítið, að þær falla ekki inn í " normið " innan ESB. Semsagt, þær reiknast ekki og þar með engir styrkir! Sennilega svipað með víkingasvínin og villiféð. Ekki yrði ég hissa.

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 7.7.2010 kl. 14:59

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það hefur lengi legið ljóst fyrir að ESB stur það sem skylirði að hætta hvalveiðum.

Björtu hliðarnar er að með því að hætta hvalveiðum þá getur orðsor Íslands batnað, ferðarþjónustan batnað og ekki síst hvalaskoðun sem getur gefið okkur gjaldeyristekjur.

Sleggjan og Hvellurinn, 7.7.2010 kl. 15:34

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Bjarni Freyr Borgarson, það er kannski tími til kominn að þú kynnir þér málin áður en þú ferð að tjá þig um þau.  Ég ásamt fleirum vann skýrslu um áhrif hvalveiða á hvalaskoðanir og var niðurstaðan sú að ENGIN tengsl væru þarna á milli og einnig var skoðað þetta "orðspor" sem þú ert aðeins að fjalla um og viti menn þetta "orðspor" er barasta ekki til nema það eru einhverjir sem hafa sett þetta fram og nota í áróðursskyni .  Öll afþreying fyrir erlenda ferðamenn skilar gjaldeyristekjum.

Jóhann Elíasson, 7.7.2010 kl. 15:57

4 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

"Hér við land er talið að hvalir éti um 6 milljónir tonna af sjávarfangi árlega sem skiptist niður í um 4 milljónir tonna af átu og smokkfiski og 2 milljónir tonna af fiski. Hrefnan er langatkvæðamesta fiskætan en talið er að hún éti um 1 milljón tonna af fiski á ári."

Nú segir ESB að við megum ekki veiða hvali af því að þeir eru svo "kjút" samkvæmt mati öfgasinnaðra náttúruverndarsinna.

Það er á hreinu að hvalveiðar eru hluti af fæðukeðjunni hér við land og nauðsynlegt fyrir afkomu okkar að geta stjórnað þeim veiðum.

Eggert Sigurbergsson, 7.7.2010 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband