EKKI VAR ÞAÐ BÚKOLLA SEM BAULAÐI Á GNARRINN.................

Til að byrja með hélt fólk að nýtt líf myndi koma í "borgarpólitíkina" með Bezta flokknum.  Hann tók við völdum með fulltingi Landráðafylkingarinnar og til að byrja með þá gerðist ekkert nýtt, fólk sagði þá gefum þessu tíma og sjáum til hvað gerist...  Enn gerðist ekkert og fólk fór að ókyrrast, en þá varð fólk vart við smáhreyfingu tilkynnt var um gjaldskrárhækkanir og fréttir fóru að berast af því að illa gengi að berja saman fjárhagsáætlun fyrir borgina og var því borið við að fjárhagsáætluninni seinkaði vegna sumarleyfa, HALLÓ HAFA STARFSMENN BORGARINNAR ALDREI FENGIÐ SUMARFRÍ FYRR?? Loksins leit fjárhagsáætlunin dagsins ljós og brá fólki all verulega því þar var lítið annað að finna en HÆKKUN áþjónustugjöldum, niðurskurður á mest allri þjónustu á vegum borgarinnar og svo AÐ SJÁLFSÖGÐU HÆKKUN ÚTSVARS.  Nú er það komið í ljós að það sem átti bara að vera "létt" grín er orðið að "útþynntum lélegum fimmaurabrandara" og áðan þegar var verið að mótmæla niðurskurðinum til tónlistarskólanna við Ráðhúsið, var Gnarrinn eins og "skítaklessa lekandi fram af kletti" og sagði bara að "nú væru erfiðir tímar og sér þætti leitt að hafa þurft að gera þetta".  Auðvitað baulaði fólk á hann og nú loksins virðist vera að fólk átti sig áhvers konar mistök það var að gera með því að veita Bezta flokknum atkvæði sitt í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
mbl.is Sagði Besta flokkinn líkjast lítilli strákaklíku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm þannig fór um sjóferð þá.  Og sem betur fer hef ég aldrei fílað skemmtaran Jón Gnarr, því ég tel að dagar hans sem skemmtikrafts séu liðnir.  Ég þekki nefnilega hvernig það er að láta næða um sig upp á fjalli, þó það sé bara hóll.  Hann mun aldrei geta orðið hlutlaus skemmtikraftur eftir þetta.  Til þess erum við of miskunnarlaus og dómhörð.  Stundum þarf maður nefnilega að huga fyrst að því hvernig endirinn getur orðið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2011 kl. 21:59

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Dagar hans sem skemmtikraftur - taldir? Já já - hann tók bara ekki eftir því þegar talningunni lauk.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 1.2.2011 kl. 23:32

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei nákvæmlega stundum hugsa menn ekki dæmið til enda, og því fer sem fer.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2011 kl. 23:57

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

segir svo réttilega Jónhann ...

"það sem átti bara að vera "létt" grín er orðið að "útþynntum lélegum fimmaurabrandara" og áðan þegar var verið að mótmæla niðurskurðinum til tónlistarskólanna við Ráðhúsið, var Gnarrinn eins og "skítaklessa lekandi fram af kletti" og sagði bara að "nú væru erfiðir tímar og sér þætti leitt að hafa þurft að gera þetta"."

Jón Snæbjörnsson, 2.2.2011 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband