ENN OG AFTUR.....................................

Ég sé engan í nánustu framtíð sem á minnsta möguleika á því að ógna Vettel á nokkurn hátt.  Þó hann væri nú hógvær í viðtali við David Coulthard á BBC1 (kom mér nú reyndar svolítið á óvart því hingað til hefur hann ekki verið neitt sérstaklega hógvær).  Að hann skuli strax í upphafi móts vera með 37 stiga forskot á næsta mann segir nokkuð mikið um hversu gífurlega miklir yfirburðir hans eru.  Enn og aftur varð ég fyrir gríðarlegum vonbrigðum með Nico Rosberg og hans frammistöðu.  Byrjunin hjá honum var alveg frábær að ná í annað sætið í startinu er alveg frábært en einhverra hluta vegna virðist hann eiga erfitt með að fylgja góðum árangri eftir, eftir fjóra eða fimm hringi náði Mark Webber að fara fram úr aftur og hann virtist gefa eftir fyrir öðrum nokkuð fljótt að enda svo í fimmta sæti er ekki alveg ásættanlegt fyrir hann.  Hann verður að fara aðeins yfir "hausinn" á sér og gera sér grein fyrir hvað þar er í gangi.  Annars var þessi kappakstur mjög skemmtilegur og mikið í gangi og margir framarakstrarnir voru hreinasta augnakonfekt.  Bernie Eccelstone sagði í viðtali við Jake Humprey á BBC1, að það væri allt útlit fyrir að samningar væru að nást, um það að keppnin yrði í Tyrklandi að ári.  Vonandi er að svo sé, því brautin þar er með þeim skemmtilegri í Formúlunni.
mbl.is Vettel vinnur 13. sigurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband