HVERNIG ER HÆGT AÐ VERA SVO ÓSVÍFINN AÐ BJÓÐA UPP Á ÞETTA????

Og svo erum við með Alþingismenn/konur, sem eru ekki gerðar neinar menntunarkröfur til eða neinar aðrar kröfur um andlegt eða líkamlegt atgervi og ekki er starf þeirra skilgreint að einu eða neinu leiti.  Því fólki er hægt að greiða meira en hálfa milljón á mánuði í fastalaun (þetta er fyrir utan öll hlunnindi og aðra bitlinga) og fyrir hvað fá þau greitt???  En svo koma lögreglumenn/konur sem sinna einhverju erfiðasta starfi sem um getur þetta starf reynir mikið á líkama og sál og fyrir þetta  (og óheyrilegan vinnutíma í þessari vinnu eru engin launuð jólafrí, páskafrí, vetrarfrí, sumarfrí í fjóra mánuði og feit eftirlaunaréttindi).  Fyrir þetta eru borguð rúmlega 200 þúsund á mánuði.  Hvernig væri nú að Alþingismenn/konur skiptu á kjörum sínum við lögreglumenn/konur????  Það er nú reyndar orðið breitt en það var þannig að alþingismenn ákváðu kjör sín sjálfir þar til fyrir nokkrum árum.  Fyrst þegar alþingissetan var gerð að heilsársstarfi, var ákveðið að gera vel við alþingismenn og þeir voru settir á sömu laun og framhaldsskólakennarar.  Þeir sættu sig ekki lengi við þau laun og öll vitum við hver þróunin hefur orðið Í ÞAÐ MINNSTA VEIT ÉG EKKI UM NEINN FRAMHALDSSKÓLAKENNARA, SEM HEFUR 520 ÞÚSUND Í FASTALAUN Í DAG.
mbl.is 13 þúsund króna hækkun á álagsgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband