VILLANDI FYRIRSÖGN...............................

Fyrst þegar ég las fyrirsögnina "MARKAÐUR FYRIR HANDLEGGI" datt mér í hug að það væri ágætis markaður þarna úti fyrir handleggi.  En svo sá ég þegar ég las greinina, að SVÖLURNAR ,sem er félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja og flugþjóna, ætla að halda markað um helgina til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni, sem missti báðar hendur í vinnuslysi.  Þessi félagsskapur hefur látið mikið gott af sér leiða í gegnum tíðina og látið mjög margt gott af sér leiða.  Þá er það algjört lágmark að þeir sem fjalla um þessi mál í fjölmiðlum og ég tala nú ekki um þeir sem skrifa um þetta fréttir reyni að vanda það sem þeir gera................
mbl.is Markaður fyrir handleggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þeir voru fljótir að breyta fyrirsögninni...

Jóhann Elíasson, 10.11.2011 kl. 14:49

2 Smámynd: Snowman

Fyrirsögnin er ekki breytt, en er allt önnur þegar þú ferð ínn á fréttina sjálfa.  Á forsíðu mbl.is er hún ennþá "Markaður fyrir handleggi"

Snowman, 10.11.2011 kl. 14:59

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Þarna liggur þá hundurinn grafinn" og ég sem hélt að Moggamenn hefðu verið svona fljótir að bregðast við.  Eða var þetta bara vitleysa í mér að vera að agnúast út í þetta???????

Jóhann Elíasson, 10.11.2011 kl. 15:07

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Jóhann að bera virðingu fyrir málinu okkar er skylda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2011 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband