VIRÐISAUKASKATTSKERFIÐ ER BARA KOLGALIÐ............................

Og er bara engan veginn að skila tekjum í samræmi við væntingar.  Kerfið er bara mjög dýrt í framkvæmd.  Án þess að hafa farið alveg í saumana á því, þá myndi ég ætla að hjá þeim fyrirtækum sem eru í sjö prósent þrepinu, sé INNSKATTURINN yfirleitt HÆRRI en ÚTSKATTURINN.  Þá sé eftirlitið með virðisaukaskattskerfinu bæði dýrt og óhagkvæmt og kannski eru ekki allir sem skilja "undanþágurnar" og "þrepaskiptinguna" og hvaða línum er þar fylgt.  Mun hagkvæmara yrði að leggja virðisaukaskattinn niður og taka upp svokallaðan veltuskatt á fyrirtæki og félög og yrði þessi skattur 5 - 7%.  Þennan skatt væri hægt að innheimta í tveggja mánaða tímabilum og þarna væri ekki um NEINAR endurgreiðslur að ræða.................................
mbl.is „Vanþekking á eðli vasks“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi ríkisstjórn skilur bara ekki grundvallar atriði sem þetta snýst allt saman um.  Krefðust of mikils og fólk annað hvort hættir við eða fer að svíkja undan skatti.  Ég trúði þessu aldrei alveg sem menn voru að segja um skattagleði vinstri manna, en nú sé ég að þar var hvergi ofsagt heldur undir statement ef eitthvað var.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.8.2012 kl. 11:50

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Kannski er bara verið að ræna Þjóðina enn þá og þess vegna er allt kerfið gert svo erfitt fyrir hinn almennaborgara að skilja, því minna sem fólk skilur því meira er hægt að gera á bakvið tjöldin því miður og það er ekki að ástæðulausu sem ég segi að við Íslendingar eigum að kalla eftir einföldu kerfi hér með fasta peningarstefnu á öllum sviðum...

Ekki þessar flækjur allar saman sem eru bara til þess eins, eins og ég segi að stela undan...

Það er ekkert smá af peningum sem Ríkissjóður er að fá frá okkur Þjóðinni úr öllum áttum og ég er oftar og oftar farin að spyrja mig af þeirri einföldu spurningu hvað kostar eiginlega að reka tæplega 320,000 manna samfélag sem Ríkisstjórnin er þó ekki að geta rekið þrátt fyrir þessa gífurlegu innkomu...

Það þarf að fara ofan í saumana á rekstri Ríkissjóðs síðustu 3 til 4 árin myndi ég halda til þess að fá þetta á hreint og sjá hvar bruðlið er ef það er svo...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.8.2012 kl. 14:42

3 identicon

Já, 

sjálfstæðismenn hefðu og hafa sko aldrei búið til svona óréttlátan skatt. Þeir hefðu bara sett flatan skatt á allt, og ekki bifast vegna þrýstings og einkahagsmuna.  Ég vil fá sjálfstæðismenn við stjórnvölin á ný!!! 

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 19.8.2012 kl. 01:23

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Oft ratast kjöftugum rétt orð í munn" Jónsi því það var Alþýðuflokkurinn sem kom þessu VSK kerfi á...............

Jóhann Elíasson, 19.8.2012 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband