ÁRLEGUR ÁRÓÐUR HAFINN HJÁ ÞESSUM HRYÐJUVERKSAMTÖKUM.....

Sem, fyrirtæki og einstaklingar á vesturlöndum styðja af miklum "rausnarskap" og gera Paul Watson færi á að reka hryðjuverkastarfsemi sína með bestu tækjum og búnaði sem völ er á.   Ekki hef ég með nokkru móti getað skilið hvers vegna á að vernda hvali umfram einhverjar aðrar skepnur?  Það hafa lengi verið helstu rök hvalverndunarsinna að þetta séu svo gáfaðar skepnur og tilfinningaríkar en nýlega voru birta rannsóknir, sem sýndu að hvalir væru bara frekar heimskir og þar væri í það minnsta ekki ástæða til að vernda þá sérstaklega vegna gáfnafars.  Það kom líka fram að það gekk mjög erfiðlega að fá þessar rannsóknir birtar í vísindaritum, aðallega vegna þess að hvalverndunarsinnar vildu ekki að þessar niðurstöður yrðu kunnar almenningi og mynd kannski skaða málstað friðunarsinna, sem ekki er nú "beysinn" fyrir.  Nokkuð góð fannst mér sú skýring (man ekki frá hverjum hún var) að hvalir væru bara beljur hafsins..................
mbl.is Blóðbað í Suðurhöfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband