HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ VEIÐIGJÖLD KOMA MEIRA NIÐUR Á LANDSBYGGÐINNI????

 

Þetta er orðinn dæmigerður málflutningur LÍÚ (þeir eru víst búnir að skipta um nafn núna og gott ef þeir hafa ekki skipt um kennitölu líka).  Það er nú alveg lágmark að menn rökstyðji svona fullyrðingar þegar þær eru settar fram.


mbl.is Veiðigjald þungur landsbyggðarskattur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Án þess að ég viti það nákvæmlega býst ég við að það hafi eitthvað um málið að segja að sjávarútvegur hafi hlutfallslega meira vægi á landsbygginni er höfuðborgarsvæðinu.

Svona eins og að sérstakur möppudýraskattur hefði meiri áhrif á höfuðborgarsvæðinu en úti á landi.

ls (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 09:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg greinilegt að þú veist NÁKVÆMLEGA ekkert hvað þú ert að tala um Is............................

Jóhann Elíasson, 13.5.2015 kl. 10:53

3 identicon

Er það þá s.s. rangt að sjávarútvegur hafi meira vægi á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu?

ls (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 10:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já og til dæmis það eru hlutfallslega fleiri "möppudýr" (skrifstofumenn) á landsbyggðinni.  Þetta getur þú séð ef þú nennir að fara á hagstofan.is...  Vanalega nenni ég nú ekki að rökræða við menn sem ekki hafa kjark til að skrifa undir nafni en ég gerði undantkningu  núna, því þú varst með svo ósegjanlega mikið bull í gangi............... 

Jóhann Elíasson, 13.5.2015 kl. 11:42

5 Smámynd: Ómar Gíslason

Er ekki bara best að láta allan kvótann til Reykjavíkur, þá þyrfti landsbyggðin ekki að hafa áhyggur af þessum skatti.

Ómar Gíslason, 13.5.2015 kl. 12:02

6 identicon

Kíkti aðeins á Hagstofuna:

Við vinnu í aðalstarfi eftir atvinnugreinum (bálkar), kyni og búsetu  2014

FjöldiHöfuðborgarsvæði 

A: 3 - Fiskveiðar 700

C: 10.2 Fiskiðnaður 600

J - Upplýsingar og fjarskipti 6.600

K - Fjármála- og vátryggingastarfsemi 5.200

L - Fasteignaviðskipti 600

M-N - Ýmis sérhæfð þjónusta 12.300

O-Q - Opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónusta 28.300

Utan höfuðborgarsvæðis 

A: 3 - Fiskveiðar 3.000

C: 10.2 Fiskiðnaður 3.500

J - Upplýsingar og fjarskipti 700

K - Fjármála- og vátryggingastarfsemi 800

L - Fasteignaviðskipti 0

M-N - Ýmis sérhæfð þjónusta 2.900

O-Q - Opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónusta 15.200

ls (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 12:11

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Var þá engin starfsemi á landsbyggðinni 2014????? cool

Jóhann Elíasson, 13.5.2015 kl. 12:41

8 identicon

Ætla rétt að vona að þessir 26.100 sem þarna eru taldir upp (utan höfuðborgarsvæðisins) hafi verið að gera eitthvað eins og hinir sem eru ekki í þessari upptalningu.

Mér fannst bara athyglisvert (svona fyrst þú varst að benda á Hagstofuna) að bera saman hversu margir unnu við fiskveiðar og fiskiðnað og svo ýmis "möppudýrastörf" á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og svo utan höfuðborgarsvæðisins hins vegar.  Opinbera þjónustan flæktist svo þarna með en fróðlegt að hafa hana með.

Eigðu annars ágætan dag.

ls (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 13:10

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er  nokkuð ljóst að þú ert síður en svo með fulla fimm og meira að segja nokkuð langt frá því að vera með hálf fimm.  En það virðist vera að þú sjáir ekkert athugavert við að bera saman appelsínur og vínber...............

Jóhann Elíasson, 13.5.2015 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband