Föstudagsgrín

Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum.  Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni.  Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. "Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það," segir hún og klæðir sig í flýti.  "Stattu bara þarna grafkyrr." Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: "Elskan hvað er nú þetta?" "Þetta, æi þetta er bara stytta," segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart." Ekkert er rætt meira um "styttuna", ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. "Gjörðu svo vel," segir hann. "Ég stóð eins og hálfviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband