SAMKVÆMT SKOÐANAKÖNNUNUM ER BEST AÐ VERA ALVEG ÓÁBYRGUR

 

Þrátt fyrir að Píratar séu með öllu stefnulausir, í flestum stærstu málum þjóðarinnar, mælast þeir með lang mest fylgi allra flokka á Alþingi í skoðanakönnunum.  Þeir virðast njóta þess að vera það sem er kallað "HREIN MEY" í stjórnmálum.  Þegar Píratar fá svona svakalega fínan byr í seglin, sér fyrrverandi kapteinn þeirra Birgitta Jónsdóttir, sér leik á borði að fjölga árunum í "þægilegu innivinnunni" um fjögur, þrátt fyrir að vera marg sinnis búin að gefa það út að sér fyndist algjört hámark af þingmönnum að sitja í tvö kjörtímabil.  Píratar ætluðu ALLIR að vera að HÁMARKI EITT KJÖRTÍMABIL.  Sá eini þeirra sem stóð við stóru orðin var Jón Þór Ólafsson en Birgitta upplýsti það á Eyjunni hjá Birni Inga Hrafnssyni, að Helgi Hrafn Gunnarsson ætlaði fram  aftur og hún héldi að Jón Þór Ólafsson sæi eftir því að hafa hætt.  Verða þá önnur "loforð" Pírata með sama sniði?


mbl.is „Óábyrgt að fara frá borði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband