HVAÐA LAUSN HELDUR HANN AÐ HANN GETI SAMIÐ UM FYRIR ÍSLAND??????

Það hefur verið alveg með ólíkindum að fylgjast með viðbrögðunum við þessu ferðabanni til  Bandaríkjanna, sem var sett á Evrópu og þó aðallega á þau ríki sem eru í Schengen-samstarfinu.  En það er eftirtektarvert að þetta ferðabann nær ekki til Bretlands (England, Skotland og Wales) og Írlands en þessi lönd eru ekki í Schengen og geta sýnt fram á "eðlileg" viðbrögð til að hefta útbreiðslu covid 19-veirunnar.  Í Bandaríkjunum er litið svo á að innan Schengen-ríkjanna séu alls ekki gerðar fullnægjandi ráðstafanir til þess að hindra útbreiðslu covid 19-veirunnar.  Svo hefur móðursýkin og taugaveiklunin við þessari ákvörðun Bandaríkjastjórnar, verið svo með ólíkindum, að fólk hlýtur að hugsa með sér að það hljóti nú bara eitthvað mikið að vera að.  RÚV og fleiri aðilar láta strax að því liggja að nú hafi Trump bara farið öfugu megin fram úr rúminu þann morguninn og drifið sig bara á "tvitter" og ákveðið þetta einn, tveir og þrír.  En þannig er það bara ekki, maðurinn er ekki einræðisherra í Bandaríkjunum og þarf að bera allar svona ákvarðanir undir ríkisstjórnina og þingið.  Eina "undanþágan", sem hægt er að ímynda sér að Utanríkisráðherra Íslands geti gert sér vonir um að fá, að mínum dómi frá þessu ferðabanni á Evrópu, er fragtflutningur á ferskum fiski og öðrum varningi frá Íslandi............ ÞETTA SÝNIR OKKUR SVO EKKI VERÐUR UM VILLST AÐ ÞARNA ER SCHENGEN-SAMNINGURINN AÐ VALDA OKKUR STÓRSKAÐA EINS OG FLEST SEM KEMUR FRÁ ESB HEFUR GERT SÍÐUSTU 15 ÁRIN........


mbl.is Guðlaugur hittir Pompeo í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Á maður virkilega að trúa því að það sé ekki meirihluti á Alþingi fyrir að segja upp Schengen svo hvað er að???

Sigurður I B Guðmundsson, 13.3.2020 kl. 17:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sennileg er ekki meirihluti á Alþingi fyrir uppsögn á Schengen.  Það var Björn Bjarnason, sem keyrði Schengen í gegn og hann sér það sem persónulega árás á sig ef einhver setur sig upp á móti þeim samningi og ekki virðist EES-samningurinn vera mikið neðar á vinsældalistanum hjá honum.  Menn hljóta nú að muna eftir "skýrslunni", sem hann og tveir aðrir INNLIMUNARSINNAR gerðu?????????

Jóhann Elíasson, 13.3.2020 kl. 18:01

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll,ekki man ég eftir "skýrslu" sem hann gerði með innlimunarsinnum,en í dag get ég vel trúað að hann hafi verið falskur Sjálfstæðisstrumpur.- -Ég er viss um að þorri landsmanna beiti sér fyrir úrsögn úr Schengen. 

Helga Kristjánsdóttir, 14.3.2020 kl. 00:04

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helga, hann var í forsvari þriggja manna nefndar, sem átti að gera skýrslu um jákvæð og neikvæð áhrif EES-samningsins e einhverra hluta vegna varð þessi "skýsla" að lofsöng um EES........

Jóhann Elíasson, 14.3.2020 kl. 08:39

5 Smámynd: Óskar Kristinsson

Takk fyrir góð skrif Jóhann! til hamingju með að vera laus við VEIRUNA af síðunni þinni!!!

Óskar Kristinsson, 14.3.2020 kl. 15:16

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Óskar.  Ég hef grun um að "VEIRAN" sem þú kallar svo heiti Sigfús Ómar, ég hef engin áform uppi að láta hann halda áfram að drulla yfir allt og alla sem EKKI eru LANDRÁÐAFYLKINGAMENN.  Ég virði allar stjórnmálaskoðanir en að mínu mati á ekki að vera með persónulegt skítkast og lítilsvirðandi skrif um einstaklinga, sem ekki eru einu sinni til staðar til að verja sig.

Jóhann Elíasson, 14.3.2020 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband