NETÁRÁSIR FRÁ RÚSSLANDI????????

Hefur Joe Biden einhverjar sannanir í höndunum þess efnis að umræddar netárásir sú komnar frá Rússlandi?  Það verður ekki betur séð en að þarna sé verið að "BÚA TIL" óvin, það er nú svolítið skondið að sjá það að Vinstri Hjörðin" sé að gera Rússa (sem eru Vinstri sinnaðir því ekki er hægt að saka Rússa um að vera Hægri sinnaða) að einhverjum sérstökum óvini........ cool


mbl.is Biden lofar aðgerðum vegna netárása frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Núverandi leiðtogum Rússlands verður seint lýst sem vinstri sinnuðum: https://en.wikipedia.org/wiki/United_Russia

Trausti Geir Jónasson (IP-tala skráð) 10.7.2021 kl. 12:06

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Katrín Jakobsdóttir lítur líka á Rússa sem óvini og þegar utanríkisráðherra þeirra var hér á landi og spurði Katrínu hvort löndin ættu ekki að taka upp viðskipti á ný sagði Katrín NEI. Væntanlega fyrir hönd okkar sem ég er algjörlega ósammála. 

Sigurður I B Guðmundsson, 10.7.2021 kl. 12:43

3 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Jóhann,

Það er heill haugur af sönnunum fyrir því að Rússar standi á bak við fjölmargar netárásir, sem hafa verið gerðar hér undanfarin áratug.  Lufsan sem var forseti hér var með skottið á milli lappanna í öllum samskiptum við gamla KGB kommann og þorði aldrei að æmta eða skræmta.  Ekki einu sinni þegar sannaðist að Rúsznesk stjórnvöld með fullri vitund Pútíns voru að borga leyniskytyum fyrir að drepa Bandaríska hermenn í Afganistan! 

Solar Wind árásin var gerð frá Rússneskum serverum.  Árásim á Colonial var nokkuð örugglega frá Rússlandi.  Bara nýjustu dæmin umstórfeldar netárásir hér í Bandaríkjunum.  Rússneskum glæpamönnum var leyft að fara sínu fram meðan agent orange var við völd og hafa komið sér vel fyrir.  Núna er Pútín fúll yfir að puntudúkkan hans vann ekki kosningarnar og hann getur ekki gert hvað sem er.

Af hverju eru hægri menn á Íslandi allir með nefið fast aftan í gömlum rússneskum komna?  Það finnst mér alveg sprenghlægilegt!

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 10.7.2021 kl. 13:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Real citation needed Trausti.  Menn sem búa í Rússlandi skrifa nú seint upp á það að Rússar séu EKKI vinstri sinnaðir...

Jóhann Elíasson, 10.7.2021 kl. 14:05

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún er alveg stórkostleg þessi "Rússafóbía" sem er í gangi, Sigurður.......

Jóhann Elíasson, 10.7.2021 kl. 14:07

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Arnór, það er engu líkara en að þú látir mata þig á hvaða vitleysu sem er.  Málið er að það eru ENGAR sannanir um hlut Rússa í þessum netárásum, það er minnsta mál í heimi að "fela" slóð á netinu eða jafnvel að beina þessari sömu slóð hvert sem menn vilja.  Og þú ættir að birta þessar "sannanir" sem þú ert að tala um........

Jóhann Elíasson, 10.7.2021 kl. 14:20

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það er ekki langt síðan það passaði USA að allar netárásir væru frá Norður Kóreu og sönnunargögnin voru agnarsmár kóði sem fannst og hugsanlega var N-Kórenskur

Í Svíþjóð má sjá hversu margar tölvur eru með þekkt smit og þessar tölvur má yfirleitt nota við tölvuárásir frá óþekktum aðila því sá sem smitaði hefur vald yfir tölvunum

Infekterade datorer i Sverige − www.cert.se

Grímur Kjartansson, 10.7.2021 kl. 17:08

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessar "sannanir" sem Arnór nefnir eru örugglega á svipuðum nótum Grímur......coolwink

Jóhann Elíasson, 10.7.2021 kl. 18:54

9 identicon

Vafalaust gera Rússar tölvuárásir eins og aðrir ,en samkvæmt leyniskýrslu CIA sem var lekið, koma lang flestar tölvuárásir frá Bandar. og í öðru sæti var Kanada öllum till mikillar furðu.
Rússland komst ekki inn á topp tíu,samkvæmt CIA skýrslunni.
Rússar hafa árum saman verið að tala um það við Bandaríkjamenn að búa til sáttmála um þetta efni svo það megi koma lögum yfir þetta fólk.
Bandaríkjamenn hafa staðfastlega neitað ,sem er eðlilegt í ljósi þess að þeir eru þeir aðilar sem lang mest stunda þessa iðju.

Borgþór Jónsson (IP-tala skráð) 10.7.2021 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband