HVAÐ KALLAST GÆLUDÝR OG HVERSU LANGT Á AÐ GANGA Í AÐ HLEYPA FÓLKI MEÐ ÞAU INN Í LANDIÐ????

Mér varð hugsað til þessara mála þegar ég horfði á umfjöllun um þetta mál á NRK (Norska ríkissjónvarpinu) og svo las ég um þetta á "Fædrelandsvennen" (netsíðunni) áðan SJÁ HÉR .  Þar kemur fram að um 380 "gæludýr" hafi komið til landsins með flóttamönnum og nokkuð sé um TEGUNDIR sem séu ÓLÖGLEGAR í Noregi EN ÞÆR HAFI SAMT SEM ÁÐUR "SLOPPIÐ Í GEGN".  Ekki hef ég staðfestar heimildir um þetta hér á landi en er einhver ástæða til að  ætla að það sem gerist annars staðar geti ekki gerst hér á landi.  Kona sem vinnur í Leifsstöð, sagði mér frá atviki þar sem Úkraínsk kona fékk að labba óreitt í gegn með lítinn hund inn í landið.  Sé þetta satt og rétt þá er þarna um alveg grafalvarlegan atburð að ræða og er mér bara spurn:  ÞÓ SVO AÐ NEYÐ FÓLKSINS SÉ MIKIL (OG ÞAÐ ER ALGJÖRLEGA ÓUMDEILT) RÉTTLÆTIR ÞAÐ AÐ LANDSLÖG SÉU BROTIN OG JAFNVEL AÐ HEILBRIGÐI OG ÖRYGGI LANDSMANNA SÉ SETT Í HÆTTU VIÐ AÐ HJÁLPA FÓLKINU???????


mbl.is Skipuleggja gæludýrabjörgunarleiðangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það tekur íslensk yfirvöld sirka tvö ár að fatta að það sem gerist úti kemur lika hingað og þá er nátturlega allt komið í óefni hjá okkur!!

Sigurður I B Guðmundsson, 9.4.2022 kl. 17:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú hefur lög að mæla Sigurður.........

Jóhann Elíasson, 9.4.2022 kl. 18:36

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Nokkuð viss um að ég hafi séð frétt um einhverja sem ætluðu til Ukraínu til að bjarga gæludýrum sem gætu verið á vergangi

Grímur Kjartansson, 9.4.2022 kl. 22:05

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Viðhengd frétt fjallar einmitt um það Grímur..........

Jóhann Elíasson, 10.4.2022 kl. 10:20

5 identicon

Svo verður hlaupið til og funinn sökudólgur þegar allt er komið í vitleysu.  Menn birgja alltaf brunninn eftir að barnið er dottið í hann.

Jóhannes (IP-tala skráð) 11.4.2022 kl. 07:55

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Jóhannes og þarna held ég að vandamálið liggi, akkúrat eins og þú bendir á......

Jóhann Elíasson, 11.4.2022 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband