VONANDI AÐ "SAKBORNINGARNIR" STANDI Í LAPPIRNAR OG VÍSI MÁLINU TIL LÖGREGLU

Þetta er bara orðið með öllu óþolandi.  Konur virðast geta komið með ÁSAKANIR um kynferðislega áreitni hægri - vinstri og til að bíta hausinn af skömminni, þá stofna stjórnmálaflokkarnir einhverjar KYNLÍFSEFTIRLITSDEILDIR innan sinna ráða og jafnvel gerir biskupinn þetta líka og þessir aðilar telja sig hafa eitthvað lögregluvald og dómsvald í þessum málum og MJÖG SJALDAN EÐA ALDREI fara þessi mál til lögreglu eins og þau eiga að sjálfsögðu að gera.  Og nú er allt vitlaust vegna máls sem kirkjan er með til meðferðar og búið að vera í gangi í ÁTTA MÁNUÐI OG EKKI ENN KOMIN NIÐURSTAÐA Í ENNÞÁ og hefur aldrei komið til lögreglu og búið að koma í veg fyrir að sé hægt að rannsaka það,vegna þess hvernig á málinu hefur verið á BISKUPSSTOFU.........


mbl.is Fundað um „ömurlega reynslu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eins og kom skýrt fram í máli Ingu Sæland á Bylgjunni í morgun, hyggst stjórn flokksins ekki taka sér neitt ákæruvald eða dómsvald varðandi hugsanlega refsiverða háttsemi.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.9.2022 kl. 13:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir upplýsingarnar Guðmundur.  Þá bara liggur beinast við að þetta mál verði sent beinustu leið til lögreglu þar sem það á heima.  En aftur á móti er mál prestsins í Digraneskirkju þannig vaxið að biskupsstofa er búin að taka sér lögreglu- og dómsvald og þú sem lögfræðingur hvað hefur þú um það að segja????????

Jóhann Elíasson, 14.9.2022 kl. 14:02

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Lengur en ég hef verið lögfræðingur hef ég verið þeirrar skoðunar að félagasamtök þ.m.t. trúfélög hvorki geti né eigi að fara með lögreglu- og dómsvald.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.9.2022 kl. 14:26

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var vel svarað hjá þér og heiðarlega og hafðu bestu þakkir fyrir og ekki minnkaði álit mitt á þér við þetta svar........ 

Jóhann Elíasson, 14.9.2022 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband