"POPPÚLISTAFLOKKUR"............

Síðan nýr formaður tók við stjórnartaumunum í "LANDRÁÐAFYLKINGUNNI" hefur nýi formaðurinn verið að styrkja sig í sessi með ýmsum "YFIRLÝSINGUM" sem talið er að gangi vel í landsmenn og fylgi flokksins RÝKUR upp í skoðanakönnunum.  ER MINNI KJÓSENDA Á ÍSLANDI VIRKILEGA SVONA "DAPURT" AÐ FÓLK SÉ STRAX BÚIÐ AР GLEYMA ÞVÍ HVERNIG ALMENNINGUR VAR LEIKINN SÍÐAST ÞEGAR SAMFYLKINGIN VAR Í STJÓRN LANDSINS? HVAÐ HEFUR EIGINLEGA BREYST Í SAMFYLKINGUNNI SÍÐAN ÞÁ?  SVARIÐ ER EINFALT: AKKÚRAT  EKKI NEITT.  "Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá".  Það kemur mikið á óvart að Samfylkingin skuli fara með "himinskautum" í skoðanakönnunum, undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, er kjósendur búnir að gleyma "afrekum" Samfylkingarinnar þegar hún var síðast í ríkisstjórn "INNIHALDIÐ ER ÞAÐ SAMA ÞÓTT UMBÚÐIRNAR SÉU NÝJAR"?  Hefur einhver haft fyrir því að skoða pólitískan feril Kristrúnar Frostadóttur?  Hún hóf sinn pólitíska feril í Sjálfstæðisflokknum og var víst nokkurn vegin til friðs þar í nokkur ár.  Þá er eins og hún hafi áttað sig á því að innan þess flokks var ENGIN von um framgang og það er nokkuð öruggt að hún ætlaði sér ekki að raða stólum og baka þannig að hún tók þátt í að stofna Viðreisn, en þar voru þvílíkar "kanónur" innanborðs að hún sá sinn kost vænstan að forða sér og þá var Samfylkingin næsta stoppistöð hjá henni, þar sem henni var tekið fagnandi (af öllum nema Helgu Völu Helgadóttur,segja má að hennar tími í flokknum sé á lokametrunum þó svo að fáir vilji viðurkenna það) og nú hefur hún styrkt stöðu sína rækilega með því að verða þar formaður.  ERU KJÓSENDUR MEÐ SVO MIKIÐ "GULLFISKAMINNI" AÐ ÞEIR LÁTI BLEKKJA SIG SVONA?  EF ÞETTA ER EKKI TÆKIFÆRISMENNSKA ÞÁ ER HÚN EKKI TIL  Ég veit ekki til að það að skipta út EINNI MANNESKJU GJÖRBREYTI HEILUM STJÓRNMÁLAFLOKKI....... 


mbl.is Samfylkingin styður aukna orkuöflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Eru allir búnir að gleyma Jóhönnu: Minn tími mun koma. Hann kom og fór. Fólk sat eftir í sárum. Sama stefnan allt eins en nú heitir hún ekki Jóhanna heldur Kristrún. 

Sigurður I B Guðmundsson, 13.12.2023 kl. 12:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svei mér þá Sigurður, ég held að við getum ekki orðið meira sammála........

Jóhann Elíasson, 13.12.2023 kl. 13:04

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Því miður er það svo að frá hruni haf bæst við, á hverju ári, um 4-5000 nýjir

kjósendur sem koma beint úr verksmiðjum vinstri manna. (skólum)

En eins og allir vita er skólum landsins meira og minna stjórnað af

rétttrúnaðarsöfnuði með alvarlega vinstri slagsíðu.

Þetta vita þeir og nýju litlu kjósendurnir muna að sjálfsögðu ekki neitt

og því mun sagan endurtaka sig aftur og aftur eins of fyrir hrun.

Fögur loforð og að allir geta lifað í frumskóginum sælir og sáttir er

lýsandi dæmi vinstri manna til að ná sér í atkvæði, vitandi að það er lýgi.

Unga fólkið sem kýs í dag, veit lítið sem ekkert um pólitík og því fer sem fer.

Sorglegt en satt og á þetta treystir Kristrún Frostadóttir lukkuhafi í verðbréfa braski.

Sigurður Kristján Hjaltested, 13.12.2023 kl. 14:45

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hverju orði sannara Sigurður Kristján, ég hefði ekki geta orðað þetta betur.......

Jóhann Elíasson, 13.12.2023 kl. 15:13

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Held nú samt að unga fólkið kjósi Pírata. Það er svo flott að opna landið fyrir öllum kerlingum og köllum!!

Sigurður I B Guðmundsson, 13.12.2023 kl. 15:59

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigurður líklega er það rétt.  Mín skýring á fylgi Píratana er sú að unga fólkið fann sig ekki í fjórflokkskerfinu og með komu Píratann fannst þeim koma eitthvað "nýtt" en svo kom bara í ljós að þeir breyttu engu, nema klæðaburði þingmanna sem varð "druslulegri" en áður. En það sem er öllu verra er að  Píratarnir hafa engu breytt en samt heldur fólk áfram að kjósa þá og svo er annað; Píratarnir hafa komist upp með það að vera í stjórnarandstöðu frá því að þeir voru stofnaðir og þar með lausir við alla ábyrgð ÞEIR GETA EKKI ENDALAUST SIGLT SVONA UNDIR FÖLSKU  FLAGGI.....

Jóhann Elíasson, 13.12.2023 kl. 16:23

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Vinstri grænir eru að missa mikið fylgi, margir fara yfir á Samfylkinguna. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki svipur hjá sjón, það er búið að rústa þeim flokki, eingöngu þeir sem trúa engu illu upp á flokkinn eru enn að reyna að þrauka. Á sama tíma eru mörg sjálfstæðis atkvæði sem vita ekki hvert skal leita og vilja ekki gefa upp hvað þeir myndu kjósa. Sama á við um Framsókn. Sandfylkingin nýtur góðs af þessu öllu saman. Þeir sem alltaf hafa kosið Samfylkinguna vita ekki annað, hafa ekki aðra sýn á lífið en X-S.

Tómas Ibsen Halldórsson, 13.12.2023 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband