LÖGFRÆÐIÁLIT???????????

Virðast "ALLTAF" vera túlkuð þannig að þau séu "HAGSTÆÐ" þeim aðila sem um viðkomandi álit biður.  Mér sýnist nú "lögfræðiálit" vera nokkuð vafasamur pappír í dag.
mbl.is Skilmálar sambærilegir við það sem tíðkast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég hélt í einfeldni minni að lögfræðiálit væri gert til að komast að niðurstöðu um lögfræðilegt álitamál. Svona pappír er líklega frekar álit lögfræðings en lögfræðiálit - og snýst einfaldlega bara um að endursegja það sem stendur í samningnum.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.7.2009 kl. 11:24

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hvað viltu nota Jóhann? Einhverja aðra lögfræðinga, hagfræðinga, (og þá þessa sem eru á móti) eða......Það er ekki gott að greina í hvað fólk vill þessa dagana, annað en þá bara að vilja ekki borga. Þar erum við örugglega sammála, nema ég held að það sé engin leið nothæf framhjá því, miðað við það sem á undan er gengið.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.7.2009 kl. 11:30

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lögfræðiálit eru eins misjöfn og þau eru mörg.  Hver lögfræðingur túlkar SÍNA sýn á viðkomandi lög hvort sem hann er fyrir rétti eða annars staðar og svo er málið vernig honum tekst að SANNFÆRA dómarann eða aðra um að hans túlkun á lögunu sé sú rétta.

Jóhann Elíasson, 1.7.2009 kl. 11:31

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Auðvitað Jóhann, en það er það sem ég á við, þið sem virðist halda að við getum komist undan þessu virðist bara vilja vitnisburði þeirra lögmanna/hagfræðinga og annara álitsgjafa sem draga þetta í efa.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.7.2009 kl. 11:47

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vil taka fram að ég virði skoðanir þínar mikils Hafsteinn, en líka verð ég að segja að þarna alhæfir þú nokkuð mikið, ég vil ekki sjá álit NEINNA lögfræðinga í þessu því ég veit alveg hvernig þau eru, en ég vil losna við þennan "skotgrafahernað" í þessu máli.  Ég setti athugasemd inná síðuna þína um þetta mál og vonandi skýrir það mitt álit á þessu máli aðeins.  Ég veit að við erum ekki alveg sammála en það er ekki þar með sagt að ég geti neitt sagt að mínar skoðanir séu neitt rétthærri en þínar skoðanir.

Jóhann Elíasson, 1.7.2009 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband