Bloggfærslur mánaðarins, október 2017

Föstudagsgrín

Hann Skari, sem hafði siglt um öll heimsins höf og komið við í þeim höfnum sem vert er að nefna, var farinn að reskjast og eitthvað hafði nú líferni hans á árunum áður tekið sinn toll en hann varð að fara á hjartadeild LSH, þar átti hann að fara í hjartaþræðingu.Þegar hann var kominn á spítalann fékk hann vægt hjartaáfall og því varð dvölin á spítalanum aðeins lengri en í fyrstu var áætlað.  Þar kom að því að karlinn átti að fara í sturtu, og fékk einn sjúkraliðinn, hún Sigríður (kona á sextugsaldri og alls ekki svo ólöguleg) það verkefni að fylgja karlinum í sturtuna og aðstoða hann ef með þyrfti.Að þessu loknu sagði hún frá því, á kaffistofunni, að hann Skari hefði látið tattóvera orðið ADAM á “jafnaldrann”.Þessu var nýi hjúkrunarfræðineminn hún Ólöf (ekki nema rétt rúmlega tvítug og draumur hvers karlmanns) ekki tilbúin til þess að trúa og ákvað að sannreyna þetta.Hún kom til baka alveg kafrjóð og sagði: Þetta er nú ekki alveg rétt hjá  þér Sigríður, hann hefur ekki látið tattóvera orðið ADAM á “jafnaldrann” heldur AMSTERDAM.


ÞETTA VAR ÞÁ SENNILEGA EKKI RÉTT SKREF HJÁ GYLFA EFTIR ALLT SAMAN.

Það er ágætt að fleiri en ég hafa efasemdir um þessi vistaskipti hjá Gylfa Þór Sigurðssyni.  En það er náttúrulega ekki útséð um það að einhver innan liðsins (Everton) fari að taka af skarið og fari að vinna fyrir kaupinu sínu. Það er ekki hægt að segja að þetta séu einhverjir lágtekjumenn og vissulega hlýtur að vera hægt að gera kröfu á viðunandi frammistöðu....


mbl.is Gylfa vantar góðan framherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAR ER "KRAFTMIKIÐ" LAND MEÐ SÓSÍALDREMÓKRATÍSKT KERFI?????

Ætlar hann að nefna Svíþjóð í þessu samhengi?  Þar er síður en svo "kraftmikið" kerfi á ferðinni.  Svíar eru að kikna undan SAMNEYSLUNNI, sem hefur aukist alveg gríðarlega undanfarin ár og nú er skattpíningin alveg að fara með þá svo ekki sé talað um flóttamannavandann en öfugt við Danina þá "má" ekki tala um hann, svona svipuð áhrif sem "Góða Fólkið hefur í Svíþjóð og hér á landi....


mbl.is Vill styrkja félagslegu stoðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÖSSUR VÍSAR EKKI Í NEIN GÖGN MÁLI SÍNU TIL STUÐNINGS

Því er ekki um neitt annað að ræða en að áætla að þarna hafi eingöngu verið um að ræða "blauta" drauma hans og því miður virðist það vera að hann fjarlægist raunveruleikann eftir sem tíminn líður, í það minnsta í þessum efnum....


mbl.is Össur segir kjósendur VG vilja í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ Á SEM SAGT AÐ VERA RÉTTUR ALLRA AÐ FÁ HÁ "KÚLULÁN", SEM VERÐA AFSKRIFUÐ

En hvaða sérstöðu hefur Viðreisn skapað sér svo fólk eigi að kjósa þá?  Kannski hvernig LANDBÚNAÐURINN hefur verið lagður í einelti??  Íslenska krónan hefur verið töluð niður af Fjármálaráðherra landsins (sem er algjört einsdæmi)??  Hvernig sjávarútvegurinn hefur verið lagður í einelti???  Að reynt hefur verið eftir fremsta megni að leggja stein í götu fiskeldis á Vestfjörðum????  Við vitum það að ýmsir hópar í þjóðfélaginu hafa það fjandi skítt, eins og til dæmis aldraðir og öryrkjar en ég hef ekki séð að Viðreisn hafi neitt frekar lagt áherslu á þá hópa , FREKAR EN AÐRIR.............


mbl.is Viljum fylgja árangrinum eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

UPPHRÓPANIR - EN EKKI EIN EINASTA LAUSN AF VITI......

Það vantar ekki gagnrýni á fiskveiðistjórnunarkerfið hér á landi og sú gagnrýni á í flestum tilfellum fullan rétt á sér en það komu EKKI FRAM NEINAR LAUSNIR AF VITI ÞARNA.  Þetta máttleysislega "kjaftæði" í fulltrúa VG, um að innkalla veiðiheimildirnar, er svo út úr kortinu að maður er bara hissa á að nokkrum heilvita manni skuli detta svona vitleysa í hug.  Fyrir það fyrsta er þetta óhugsandi, vegna þess að það myndi brjóta í bága við eignaréttaákvæði stjórnarskrárinnar.  Sama ástæða er fyrir því að LANDRÁÐAFYLKINGIN er hætt að halda fram "fyrningarleiðinni" sinni.  Hitt er svo annað mál að útreikningur svokallaðra "AUÐLINDAGJALDA" er alveg fáránlegur.  Í RAUN OG VERU ER NIÐURSTAÐAN SÚ AÐ ÞAÐ ER ENGINN FLOKKANNA MEÐ STEFNU Í ÞESSUM MÁLUM, SEM HÖND ER LEGGJANDI Á.......


mbl.is Körpuðu um framtíð sjávarútvegs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ÞARF ENGAN AÐ UNDRA - EN AFTUR Á MÓTI ER ALVEG UNDARLEGT AÐ HAFRÓ SKULI HALDA DAUÐAHALDI Í ÞETTA KJAFTÆÐI

Ekki nóg með að ekki fáist lengur skip í þessa þvælu (er ekki búið að selja flesta Japanstogarana úr landi?), heldur er nokkurn vegin búið að tæma alla ruslahauga landsins, við að reyna að fá gömul og löngu úrelt veiðarfæri í þessa "RANNSÓKN" sem HAFRÓ byggir STOFNSTÆRÐARMAT BOTNFISKTEGUNDA Á ÍSLANDSMIÐUM Á..... laughing cool


mbl.is Óvissa um framtíð togararalls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SEM BETUR FER ER MJÖG LÍTIÐ AÐ MARKA SKOÐANAKANNANIR......

Því ef það væri mikið að marka þær er útlit fyrir að land og þjóð yrðu í MJÖG SLÆMUM MÁLUM eftir kosningar 28 október næstkomandi.  En kjósendur hafa enn tvær vikur til þess að átta sig OG ÞÁ ER NÆRTÆKAST AÐ BENDA FÓLKI Á AÐ RIFJA UPP KJÖRTÍMABILIÐ 2009 - 2013. ÞEGAR RÍKISSTJÓRN LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR OG VG, SÁ UM STJÓRN LANDSINS.  FÓLK VIRÐIST VERA BÚIÐ AÐ "GLEYMA ICES(L)AVE, SKJALDBORGINNI UM FJÁRMAGNSEIGENDUR, SKATTABRJÁLÆÐINU, ÁRNA PÁLS-LÖGUNUM, SJÓVÁRMÁLINU, SPARISJÓÐI KEFLAVÍKUR, AÐ FÖLLNU BANKARNIR VORU AFHENTIR VOGUNARSJÓÐUM Á SILFURFATI EN ALMENNINGUR GREIDDI SVO "REIKNINGINN" Í TOPP OG VEL ÞAÐ.  FLEIRA VÆRI HÆGT AÐ TÍNA TIL EN EFNIÐ VÆRI Í HEILAN BÓKAFLOKK SVO ÉG LÆT STAÐAR NUMIÐ Í BILI.....


mbl.is X-S er hástökkvari vikunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KOSNINGALOFORÐIN OG GLÆRUSÝNINGARNAR HÖFÐU AÐRA SÖGU AÐ SEGJA

En líklega er ekki mikill áhugi fyrir að slíkt sé rifjað upp, rétt fyrir sveitastjórnakosningar sem og önnur óreiða í stjórn borgarinnar á yfirstandandi kjörtímabili?????????


mbl.is Um 20 þúsund íbúðir á prjónum borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"EIGNIR LÍFEYRISSJÓÐANNA"?????????

EN HVER ER SVO EIGANDI LÍFEYRISSJÓÐANNA?????  Svarið við þessari spurningu er síður en svo einfalt, á hátíðis- og tyllidögum (eins og til dæmis fyrsta maí) eru eigendur lífeyrisjóðanna félagar þeirra (þeir sem greiða iðgjöldin)en þess á milli er ENGINN raunverulegur eigandi.  EN MARGT BENDIR TIL ÞESS AÐ STJÓRNMÁLAMENN TELJI AÐ LÍFEYRISSJÓÐIRNIR SÉU EIGN RÍKISINS OG KANNSKI ER ÞAR KOMIN SKÝRINGIN Á SÍFELLT AUKNUM AFSKIPTUM RÍKISINS AF LÍFEYRISSJÓÐUNUM.  Lífeyrissjóðirnir hafa fengið að vaxa og dafna, eins og skrímsli í ríkinu og er nú svo komið að vegna gífurlegra "eigna" lífeyrissjóðanna er ríkið orðið svo HÁÐ tilveru þeirra að mjög erfitt ef ekki ómögulegt er að hreyfa nokkuð við þeim eða starfssemi þeirra. 

Lífeyrissjóðakerfinu er hægt að líkja við SVARTHOL í Íslenska hagkerfinu.  Eins og kunnugt er lágmarks ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna 3,5%, sem er alls ekki lítið og það þarf að horfa til þess að síðastliðið sumar LÆKKAÐI eignarhlutur lífeyrissjóðanna í Högum um marga milljarða með tilkomu Costco á markaðinn og ekki er útséð um fjárfestingu lífeyrissjóðanna í United Silicon.  Þá var við stjórnarslitin markaðsfall upp á 35 MILLJARÐA KRÓNA.  Í fyrra voru iðgjaldagreiðslurnar til sjóðanna um 160 MILJARÐAR en útgreiðslur um 119 MILLJARÐAR, rekstrarkostnaður þeirra var 17 MILLJARÐAR ÞETTA GERIR ÞAÐ AÐ VERKUM AÐ 58 MILLJARÐAR ÁRIÐ 2016 HAFA RUNNIÐ Í HINA SVOKÖLLUÐU ÁVÖXTUNARKRÖFU LÍFEYRISJÓÐANNA SEM Í RAUN OG VERU BARA "HVERFA" Í "SVARTHOLIÐ" SEM STÖÐUGT STÆKKAR OG TEKUR MEIRA TIL SÍN.  Öll svona kerfi, sem eru hönnuð til að hafa peninga af auðtrúa fólki eru kölluð PONZI-KERFI, í höfuðið á Charles Ponzi, höfundi þessa kerfis, sem lífeyrissjóðirnir byggja á.


mbl.is Erlendar eignir lífeyrissjóðanna nálgast 900 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband