AÐ KASTA GRJÓTI ÚR GLERHÚSI....

Ég er nú ekki alveg viss um að sala Landsbankans til Björgúlfsfeðga og Þorsteins Magnússona (Samson hópsins, kannski var það SS hópurinn?) þoli ýtarlega rannsókn?  Það er ýmislegt sem kemur fram í bók Ingimars Ingimarssonar, Sagan sem varð að segja, (2011) Veröld.  En meðal annars skrifaði Ingimar Ingimarsson bréf til Fjármálaeftirlitsins um viðskiptasögu þeirra feðga og Þorsteins en það var ekki einu sinni haft fyrir því að svara bréfinu.  Svo að öllum líkindum slær hann hressilegt vindhögg þarna.  Ætli það hefði ekki verið viturlegast hjá honum að þegja bara?  Hefur nokkurn tíma komið fram hversu mikið af skuldum hans voru afskrifaðar?


mbl.is Kallar S-hópinn „Svika-hópinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ SJÁLFSÖGÐU EIGA HÆLISLEITENDUR AÐ VERA Á AFGIRTU SVÆÐI FJARRI MANNABYGGÐUM ÞAR TIL UMSÓKN UM HÆLI HEFUR VERIÐ AFGREIDD.

Þeir hafa ekkert að gera með það að vera á einhverju flandri.  Þeir eiga bar að hafa þokkalegan aðbúnað þar sem þeim er holað niður.  Aldraðir og öryrkjar búa hér við mun verri kjör en hælisleitendur ekki eru Píratarnir neitt að hafa orð á því enda virðist ekki vera að það sé neitt "IN" að fjalla neitt um það.


mbl.is Ungir Píratar ósáttir við aðbúnað flóttafólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. mars 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband