FREKAR LITLAUS KEPPNI.......

Vettel náði öðru sætinu strax í ræsingu en honum tókst ekki að komast frammúr Valtteri Bottas.  En á 13 hring fór Carlos Saint inn í hliðina á Lance Stroll og í kjölfarið kom öryggisbíllinn út og notaði þá Mercedes-liðið tækifærið til að kalla báða bílana inn og komu upp vandamál við afgreiðslu á báðum bílunum og þegar upp var staðið þá komst Vettel framfyrir þá báða og þannig var staðan allt til loka keppninnar.  Þetta var ekki dagurinn hans Bottas, því það var alltaf eitthvað að hrjá hann alla keppnina.  Í byrjun keppninnar var það dekkjaþrýstingurinn, sem var ekki réttur og svo tók við eitthvað vandamál með vökvaþrýstinginn.  Þetta varð til þess að hann "hleypti" Hamilton frammúr sér til að freista þess að vinna Vettel en til þess vantaði að keppnin væri minnst 20 hringjum lengri.  Verst var að sjá Max Verstappen falla úr keppni vegna vandamála í bremsum.  Hann skaut Ricciardo aftur fyrir sig og er þetta önnur keppnin þar sem Ricciardo verður að lúta í gras fyrir liðsfélaga sínum og hlýtur hann að vera orðinn verulega áhyggjufullur vegna þess.  Vonandi verður meira í gangi í Rússneska kappakstrinum eftir tvær vikur.


mbl.is Vettel óbifanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ÞARF AÐ FARA AÐ VEITA LITLA FEITA BRJÁLÆÐINGNUM ÆRLEGA "LEXÍU".

 

Sem hann gleymir ekki alveg strax og kemur honum kannski aðeins í nálægð við jörðina.  Of lengi hafa menn látið hann komst upp með þetta brjálæði sitt og ekkert gert, nema að senda frá sér einhverjar marklausar ályktanir, þar sem aðgerðir Norður Kóreu eru fordæmdar.  Þetta hefur virkað álíka vel á hann eins og að skvetta vatni á gæs OG NÚ ER BARA KOMIÐ AÐ ÞVÍ (ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ) AÐ TAKA Á ÞESSUM MÁLUM AF FESTU OG Á ÞANN EINA HÁTT SEM ÞESSI BRJÁLÆÐINGUR SKILUR.  Það virðist vera það eina sem virkar er að SPRENGJA þessar tilraunastöðvar hans í loft upp og ef hann ætlar að endurbyggja þær, þá að SPRENGJA þær og halda svona áfram þar til hann gefst upp.  Hann hefur sýnt það svo um munar að hann svífst einskis og þá er ekkert annað að gera en að svara honum í sömu mynt......


mbl.is Misheppnuð eldflaugatilraun Norður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband