ÞETTA VAR ALVEG FYRIRSÉÐ....................

En það hefur alveg sýnt sig nú í gegnum árin að þetta STÝRIVAXTADÆMI er bara tómt bull og kjaftæði, bankar og fjármálastofnanir hafa haldið því að okkur , sem þeir halda að viti ekkert, að þetta sé eitthvert ofboðslegt "tæki" til að stjórna efnahagslífinu í landinu, sem stýrivextirnir eru alls ekkiStýrivextirnir er sú vaxtaprósenta sem bankar og fjármálastofnanir greiða Seðlabanka Íslands af þeim lánum sem tekin eru hjá Seðlabankanum.  Að halda því fram að þessi vaxtaprósenta, sem hefur ekkert að segja nema hún hefur eitthvað sálrænt gildi(fyrir hvern veit ég ekki), þurfi að vera svona há, er bara bull og kjaftæði.  Er ekki tími til kominn að peningastefnefndin fari að hysja upp um sig og nálgist aðeins raunveruleikann????
mbl.is Svigrúm til frekari lækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Jú, það er svo sannarlega kominn tími til þess og þó fyrr hefði verið (þetta með buxurnar).

Í Seðlabankanum er enn höfðum barið í svartan hávaxtasteininn.

Kristinn Snævar Jónsson, 17.3.2010 kl. 23:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er spurning hvort er harðara steinninn sem hausnum er barið í eða hausinn.  Það hefur sýnt sig undanfarin ár að "stýrivextirnir" hafa engin áhrif á verðbólguna eða gengið en samt er þverskallast við, manni dettur helst í hug að þeir kunni engin önnur úrræði því þetta stendur í Amerískum kennslubókum í hagfræði, en eins og menn ættu að vita gengur ekki að heimfæra Amerískar aðstæður yfir á okkar litla hagkerfi.

Jóhann Elíasson, 17.3.2010 kl. 23:31

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hvað getur seðlabankinn gert hann er farinn á hausinn!

Sigurður Haraldsson, 17.3.2010 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband