"HELGISPJÖLL"!!!!!!

Að sjálfsögðu settist ég niður fyrir framan sjónvarpið og sleppti því að fá mér koníak, því ég ætlaði að njóta þess að heyra Gunnar Þórðarson flytja þessi lög sín sem eru hrein og klár snilldarverk og ekki er hægt að segja að hann hafi slegið slöku við þarna er hvert lagið öðru betra og ég held að það séu fáir sem vita hve mörg lög hann hefur samið í gegnum tíðina.  En að mínu mati,voru það mikil mistök hjá honum að syngja þessi lög sjálfur, því eitt er að semja falleg og góð lög - það er bara allt annað að flytja þau.  Mér fannst hann engan vegin hafa röddina eða raddsviðið sem hæfði þessum lögum, kannski er maður bara svo vanur að heyra þau í flutningi upphaflegu flytjendanna, að hann fái ekki að njóta sannmælis hjá mér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann bloggvinur, ég var að hlusta á þáttinn hjá Gunnari Þórðar og fannst hann skemmtilegur, þarna voru samankomnir algjörir snillingar hver á sínu sviði. Mér fannst allir sem komu á svið standa sig vel. Það mætti gera meira af því að gera svona þætti, þetta er góð tilbreyting frá krepputali og nú gosfréttum, okkur veitir ekki af því að fá eitthvað uppbyggilegt.

Kær kveðja og hafðu það gott um Páskana.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.4.2010 kl. 21:57

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg rétt hjá þér allir voru þessir menn alveg frábærir spilamenn og hvergi hnökrar á henni og ekki ein einasta feilnóta slegin það eina sem mér fannst að var að Gunnar skyldi syngja þessi lög sjálfur, annars var þátturinn algjört eyrnakonfekt.  Hafðu það gott um páskana Sigmar og vonandi áttu góða daga, vikur, mánuði og ár framundan.

Jóhann Elíasson, 1.4.2010 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband