FÓLK BARA KANN EKKI EINU SINNI AÐ BRJÓTA AF SÉR .............................

Og á bara ekki annað skilið en að fara í fangelsi, ef einhver vitglóra hefði verið í hausnum á henni hefði hún átt fá sér eitt stykki banka eða það hefði kannski hentað henni betur að "kaupa" verslun eð verslunarkeðju og hreinsa burtu allar eignir verslunarinnar/verslunarkeðjunnar, taka alveg fullt af lánum út á starfsemina (alls ekki að fara út í neinar persónulegar ábyrgði), setja svo allt á hausinn og væla svo smá í DV og segjast sjá eftir öllu saman.  Hún fékk þriggja mánaða fangelsisdóm fyrir þetta smotterí hvað ætli útrásarvíkingarnir myndu fá EF þeir verða nokkurn tíma dæmdir?????
mbl.is Í fangelsi fyrir að stela öldós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þettar verður dýr öldós og armband  hvað mun það kosta að loka hana inni í ÞRJÁ MÁNUÐI  

Réttarkerfið á skerinu er brandari lol...

Jóhannes (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 17:20

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hjartanlega sammála, Jóhannes.

Jóhann Elíasson, 7.4.2010 kl. 18:06

3 identicon

Hún er ekki bara dæmd fyrir þennan stuld heldur fleiri líka enda rauf hún skilorð. Allt í lagi að lesa alla fréttina með smá athygli áður en maður ruglar eitthvað út í bláinn. Og það á nú enn eftir að reyna á meint brot útrásarvíkinganna.

Karl Jón Jónsson (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 20:57

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fréttin var lesin af athygli áður en var bloggað og ekki get ég séð af þinni athugasemd að hún  sé eitthvað voðalega mikið ígrunduð Karl Jón. það er rétt að það komi fram að um það hefur verið talað að ALDREI hafi staðið til að menn yrðu dregnir til ábyrgðar vegna "hrunsins" enda höfum við séð dæmi þess það var ráðuneytisstjóraræfill settur í farbann og eignir hans kyrrsettar, þarna var maður sem gæti hafa hagnast um einhverjar milljónir vegna upplýsinga sem hann hafði umfram aðra svo voru einhverjir tveir verðbréfasalar dæmdir fyrir einhverja smámuni.  Ég hef ekki nokkra ástæðu til að rengja þessar heimildir enda er EKKERT búið að koma fram sem hrekur þær.

Jóhann Elíasson, 8.4.2010 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband