SKYLDI ÞETTA "ÆVINTÝRI" UPP Á 4 MILLJARÐA (LÁGMARK) BORGA SIG???

Niðurstaðan varð sú að farið var í Bakkafjöruævintýrið og nú er komið að því að taka herlegheitin í notkun.  Það er náttúrulega vitað mál að þarf að "dýpka" höfnina, bæði ytri- og innri höfn en það er ekki vitað hversu umfangsmiklar þær framkvæmdir þurfa að vera eða hvort dýpkunarskip kemur til með að hafa undan til þess að höfnin hreinlega lokist ekki.  Ég hef séð það hér á blogginu að menn eru að líkja þessu við það að það þurfi öðru hverju að malbika Ártúnsbrekkuna, svoleiðis málflutningur gerir ekkert annað en að opinbera algjörlega þekkingarleysi viðkomandi og það að sá aðili geri ekki greinarmun á aðstæðum á sjó og landi gefur greind viðkomandi ekki háa einkunn.  En eins og ég sagði áður þá er þetta niðurstaðan og þá er ekkert annað en að vona að þetta gangi upp verði sú lyftistöng fyrir Vestmannaeyjar og nálæg sveitarfélög sem að var stefnt.  Ég vil óska Vestmannaeyingum til hamingju með þetta.
mbl.is Stöðugt þarf að dýpka Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

ekki hefur fólk virkielga verið að benda á það að þetta sé svipað og að malbika götur ?

það er náttúrulega alveg einstaklega vitlaust.

en það svo sem var vitað að þarna þyrftu að vera dýpkunarframkvæmdir reglur.

Árni Sigurður Pétursson, 20.7.2010 kl. 13:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Árni lestu bara bloggið hjá Gísla Foster Hjartarsyni og skoðaðu athugasemdirnar.  Auðvitað vissu menn að það þyrftu að vera þarna reglulega dýpkunarframkvæmdir og vonandi að það dugi og enn einu sinni vil ég óska ykkur til hamingju og vona að allt gangi samkvæmt áætlun.......

Jóhann Elíasson, 20.7.2010 kl. 13:34

3 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Já heyrðu ég þakka fyrir :)

og já, vona svo sannarlega líka að þetta gangi vel.

Árni Sigurður Pétursson, 20.7.2010 kl. 13:54

4 identicon

Er þetta samt ekki töluvert ódýrara en að bora göng ?? Og hitt,ætli þetta hafi ekki legið fyrir í upphafi þegar menn voru að hanna höfnina ??

thin (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 16:33

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

við Jóhann erum taldir úrtölumenn!!! en óskum þeim samt til hamingju blessuðum Eyjamönnum  og öllu sem þangað fara og koma/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 20.7.2010 kl. 16:55

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Thin, það er hvergi í þessari grein minnst á göng viltu ekki bara halda þig við það sem er verið að tala um og ekki vera að brydda upp á einhverju nýjy þú getur notað annan vettvang í það.

Jóhann Elíasson, 20.7.2010 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband