AÐ SJÁLFSÖGÐU STYÐJA ÞEIR FRUMVARPIÐ SEM HAFA KOMIÐ SÉR ÞÆGILEGA FYRIR Á MARKAÐNUM........

Þeir eru að sjálfsögðu fegnir að það eigi að "drepa" samkeppni strax í fæðingu.
mbl.is Ungir bændur fagna frumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

það er nákvæmlega svona kjaftæði sem Evrópu sambandsaðild myndi koma í veg fyrir

The Critic, 11.8.2010 kl. 20:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Meira kjaftæðið í þér!!!!

Jóhann Elíasson, 11.8.2010 kl. 22:09

3 identicon

Lastu fréttina áður en þú komst með þessa fullyrðingu ??

Jón Guðlaugur Guðbrandsson (IP-tala skráð) 11.8.2010 kl. 23:43

4 Smámynd: Sigurður Baldursson

Er það samkeppni þegar mjög fjársterkir aðilar sem hagnast hafa á mis löglegum fjárfestingum, yta út bændafjölskyldum sem lifa á eigin vinnu

Sigurður Baldursson, 11.8.2010 kl. 23:51

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Jón Guðlaugur og það nokkru sinnum því að ég varð að lesa þetta nokkru sinnum áður en ég gat trúað því að nokkur gæti enn verið svona gamaldags.

Jóhann Elíasson, 12.8.2010 kl. 08:43

6 identicon

"Að sjálfssögðu styðja þeir frumvarpið sem hafa komið sér þæginlega fyrir á markaðnum"

 Fréttatilkynningin kemur frá ungum bændum, það er ekki auðvelt að vera ungur bóndi í dag. Það er nánast ógjörningur fyrir mann sem langar að hefja búskap að kaupa sér býli í dag. Flestir í samtökum ungra bænda eru ekki "bændur" í þeim skilningi orðsins, heldur fólk sem langar að hefja búskap. Samtök ungra bænda eru mikið til stofnuð í þeim tilgangi að auka möguleika ungs fólks til búskapar.  

Ég get því ekki séð að ungir bændur hafi komið sér vel fyrir á markaðnum.

Í sumar stoppaði Jón Bjarnason alla verslun með mjólkurkvóta og er að reina að koma á kvótamarkaði. Með þessu það fyrir augum og svo þessu frumvarpi sýnist mér á öllu að hann sé að reyna að koma í veg fyrir að það fari með mjólkurframleiðslu eins og fiskin: að allt safnist á fáar hendur peningamanna.

Því slíkt er byrjað að gerast í mjólkurframleiðslu, téður Jóhannes Kristjánsson á t. d. bú með 250 mjólkurkúm.

Ég hafði reyndar ekki heyrt að hann væri í þessari vesturmjólk né heldur ákvæðið með "fyrirhugaða heimild í frumvarpinu þar sem aðilum í heimaframleiðslu er veitt leyfi til þess að vinna mjólk utan greiðslumarks".

Merkilegt að fjölmiðlar hafi hvorugu komið til skila til almennings !!

Góðar stundir

Jón Guðlaugur Guðbrandsson (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 12:03

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

".....téður Jóhannes Kristjánsson á t.d bú með 250 mjólkurkúm.!"

Þetta vekur hjá mér spurninguna: Hvenær hættir hættir gamla hugtakið "bóndi" að túlka upphaflega merkingu og hugtakið verksmiðjueigandi tekur við?

Við skulum hafa það hugfast að við búum á lítilli eyju úti í Atlantshafi og íbúafjöldinn jafngildir starfsmönnum nokkurra fyrirtækja í fjölmennustu iðnríkjum.

Það er argasti misskilningur að varlega reiknað meðalbú sé ávísun á örbirgð.

Enga bændur hef ég þekkt sem bjuggu við traustari fjárhag en smábændur í skilningi dagsins í dag. Þar var snyrtimennska og umhyggja fyrir hverjum grip ávísunin á miklar afurðir á einingu enda höfðu bændurnir daglega yfirsýn á alla þætti.

Og þó jafnframt nægan tíma til félagsmálastarfemi. 

Árni Gunnarsson, 12.8.2010 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband