EKKI BARA MISLUKKUÐ FRAMKVÆMD HELDUR ER ÞETTA "FLOPP" ALDARINNAR!!!!!!

Og er fyrsti áratugurinn á þessari öld ekki einu sinni liðinn.  Það var mikið búið að tala og skrifa um þessa framkvæm, þeir sem voru mest að vara við þessu voru kallaðir úrtölumenn, svartsýnismenn og ég vil ekki nefna öll þau "fúkyrði" og "uppnefni" sem voru látin fylgja með í umræðunni en nú er flest það sem var varað við að koma fram og þó er aðeins að líða að fyrsta haustinu eftir að framkvæmdir hófust, en það er eftir að koma í ljós hvernig veturinn verður......
mbl.is Herjólfur hægði á sér í drullunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já eigum við ekki að sjá hvernig fer í vetur, en væntanlega spila milljón rúmmetrar af gosefnum þarna sína rullu, svo það þarf væntanlega að dæla meira en gert var ráð fyrir í upphaflegum plönum.  Þeir sem töluðu mest gegn framkvæmdinni eru fljótir til núna eftir að sjá þetta byrja með glans.  það er bara eðlilegt, en vonandi vona allir að þetta fari vel, annars er fólk ekki í lagi

Jón Óskar (IP-tala skráð) 6.9.2010 kl. 08:39

2 Smámynd: Skarfurinn

Algjört bull frá upphafi og hlegið að úrtölumönnum, er aðgerðaleysi og klúður Siglingamálastofnunar & Vegagerðarinnar er kapítuli útaf fyrir sig, þeir gáfu grænt ljós á þetta, takk Árni Johnsen.

Skarfurinn, 6.9.2010 kl. 09:09

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Akkúrat eitt stórt klúður og ekkert annað!

Sigurður Haraldsson, 6.9.2010 kl. 09:24

4 identicon

þið eruð náttúrulega ruglaðir! þið búið svo POttþétt ekki í nálægð við vestmannaeyjar og leið og eins og jón óskar sagði að ófyrirsjáanlegur hlutur eins og smá eldgos setur strik í reikninginn þá eruð þið allir bara "JÁ ég vissi þetta allt fyrir " og "þvílíkt bull afhverju er ég bara ekki gerður að forsetisráðherra" það sem ég vil segja að lokum er það að ég bookmarka þessa síðu og tala síðan við ykkur alvitringana næsta sumar!

... (IP-tala skráð) 6.9.2010 kl. 12:29

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það þarf ekki að búa í Vestmannaeyjum til að sjá að þessi framkvæmd er tómt kjaftæði.  Ætlar þú að hafa samband við mig næsta sumar til að láta mig vita af því að það verður kannski hægt að nota Landeyjahöfn, sem smábátahöfn, þegar gott er veður????  Svo er lágmark að drullusokkar, sem eru að skrifa athugasemdir, þori að koma fram undir nafni.

Jóhann Elíasson, 6.9.2010 kl. 12:53

6 Smámynd: Börkur Hrólfsson

Það var ekkert ,,ófyrirsjáanlegt" við eldgosið. Menn hafa beðið eftir hamfaragosi á Kötlusvæðinu í áratugi, og það er vel þekkt og vitað að gosefni myndu berast niður á suðurströndina. Hafa menn gleymt ríkjandi straumum ?, það er bara talað um vindáttir, en hvað með sterka strauma til vesturs, sem flytja sand vestur eftir ströndinni ?

Börkur Hrólfsson, 6.9.2010 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband