SAMMÁLA UM AÐ FESTA KVÓTAKERFIÐ ENN FREKAR Í SESSI!!!!!!!!!!!!!!!!

En sem betur fer er "þessi snarruglaða FYRNINGALEIÐ" úr sögunni, í það minnsta haf allir sem komu að þessu starfi verið sammála um að hún væri "alvond" og ekkert hægt að byggja á henni.  En það sem er merkilegt við þessa niðurstöðu, er að "smalahundar" LÍÚ hafa gelt þegar þeim hefur verið sigað og hafa komið því í gegn að kvótakerfið var styrkt mikið, þannig að nú verður ekki úthlutað "gjafaheimildum" til eins árs, eins og verið hefur, heldur til áratuga.  Það sem ég hjó sérstaklega eftir hjá þeim Einari K. Guðfinnssyni og Dagbjarti Hannessyni, var að þeim fannst þeim líklegast að þessi tillaga nyti stuðnings meðal þjóðarinnar.  Boy oh boy ég veit að Spaugstofan er farin yfir á stöð 2 en samt þarf að vanda sig þegar "grínarar" koma á RÚV og sérstaklega ef þeir eiga að koma í staðinn fyrir Spaugstofuna og það verður að vera nokkuð ljóst að það sem menn segja hafi eitthvert skemmtanagildi.  Senditíkur LÍÚ, sem voru í nefndinni, hljóta að fá rífleg laun fljótlega?????
mbl.is Breið samstaða um nýja hugmyndafræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég heyrði líka að það var himin og haf milli álits þeirra Hannesar og EInars á þessari "sátt" annar hélt að útgerðarmenn héldu sínu óskertu, hinn var greinilega á því að menn yrðu að veiða sjálfir það sem þeir fengju úthlutað, það þýðir þá að framleiga verður ekki leyfið ..... eða hvað?   Ekki ætlar ríkið að leyfa útgerðuamönnum að hirða kvóta til að leiga hann áfram til annara.... Eða hvað?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.9.2010 kl. 09:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér skyldist á öllu að það væri niðurstaðan, samkvæmt þessu var ekkert minnst á framleigu eina breytingin væri sú að í stað þess að veiðiheimildunum yrði úthlutað einu sinni á ári er að eftirleiðis verður þeim úthlutað í eitt skipti fyrir öll í einhverja áratugi.

Jóhann Elíasson, 8.9.2010 kl. 09:12

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Auðvitað er fyrningarleiðin klaufaleg breyting og markleysa. Þetta mál var heldur ekki leyst með neinni sátt við þjóðina en stjórnvöld hafa ævinlega ákveðið sjálf hvað þjóðinni finnst og þar með talið óþarfa að spyrja kjósendur.

Málið sýnist ónýtt í dag nema hvað LÍÚ fékk sínum kröfum framgengt, enda fengu þeir frítt spil á öllu ferlinu og fóru í verkfall ef þeim fannst sér misboðið.

Ég vænti þess að í ljós komi að þetta er ekki sáttaleið heldur svik við íslenska þjóð og í anda þeirra vinnubragða sem ofbeldi lýðræðisins á Alþingi Íslands hefur gert að sinni vinnureglu.

Og nú fara pólitíkusarnir að tala niður til okkar á ný um þetta baráttumál.

Árni Gunnarsson, 8.9.2010 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband