Eru menn ekki enn búnir að átta sig á því að atvinnurekendur hafa ENGAN rétt til að skipa fólk í stjórnir lífeyrissjóðanna???????

Þótt í þessari frétt sé verið að fjalla um stöðu kvenna í stjórn lífeyrissjóðanna get ég ekki annað en ítrekað þá skoðun mína að atvinnurekendur hafi komið sér í stjórnir lífeyrissjóðanna með undirferli og falsi, hér kemur rökstuðningurinn:  Atvinnurekendur hafa komið sér í stjórnir lífeyrissjóðanna í krafti "mótframlags atvinnurekanda" til lífeyrissjóðs þess eða þeirra launamanna er hjá honum starfa.  Þessi túlkun er, að mínu mati og margra annarra, ekki rétt.  Við skulum þar af leiðandi huga að tilurð "mótframlagsins"; þannig var að atvinnurekendur voru EKKI tilbúnir í BEINAR launahækkanir og þá varð þrautalendingin sú að sett var á þetta "mótframlag í lífeyrissjóð viðkomandi starfsmanns" því er hægt að segja að atvinnurekandi hafi ALDREI greitt NEITT til lífeyrissjóðanna HELDUR SÉ "MÓTFRAMLAGIÐ" HLUTI AF LAUNAKJÖRUM VIÐKOMANDI LAUNAMANNS.  Þar af leiðandi er hægt að segja að atvinnurekendur hafi með KLÆKJUM komið sér í stjórnir lífeyrissjóðanna.
mbl.is Færri konur fulltrúar ASÍ en SA í stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Það ætti að setja það í lög, að ASÍ félagar eigi að vera í meyrihluta í stjórnum sjóðana, eða bara alfarið ASÍ félagar!! SA hefur ekkert með þessa peninga gera og ræður ekki yfir þeym á neinn hátt, þeyr eru þarna inni til að geta braskað með spariféð okkar!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 28.10.2010 kl. 14:28

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sammála þér - búinn að þrasa um þetta í 40 ár

Svörin hafa verið æði misjöfn í gegnum tíðina.

Eitt er það að vinnukaupendur hafi stofnað aðra sjóði t.d. endurmentunarsjóð - og þá spurt hvort vinnuseljendur (ASÍ) vilji standa undir þeim sjóði -

Ábending þín um að þerra sé hluti launa sem renni frá fyrirtækjunum í lífeyrissjóðina er rétt. Á móti ( þegar þetta var gert ) var hækkun til vinnuseljenda minni en annars hefði orðið. Þetta er því allt í skötulíki. Of hefur alla tíð verið.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 29.10.2010 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband