ÞAÐ GENGUR ALLT Á AFTURFÓTUNUM - SEGIR ÞAÐ MÖNNUM EKKERT??

ÞESSI FRAMKVÆMD ER BÚIN AÐ VERA EIN SORGARSAGA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA og enn stinga yfirvöld hausnum í "sandinn" og þessi vitleysa á bara eftir að versna haldi menn áfram að vera í "STRÚTALEIK".  Hvað á þessi vitleysa eiginlega að ganga lengi og má ég minna á það að á meðan þetta "klúður" er í gangi eru framtíðar samgöngumál Vestmannaeyinga óleyst.  Það þarf að fara fram rannsókn á tilvist og framgangi þessa "klúðurs" og draga menn til ábyrgðar!!!!!!!!!!!!


mbl.is Skandia frá í dag vegna bilunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hafa menn ekki einfaldlega rekið höfuðin það djúpt í sandinn að þeir ná þeim ekki upp aftur?  Er það ekki draumur og giska fjarlægur að íslenskir stjórnmálamenn axli ábyrgð?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.3.2011 kl. 20:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú, líklega er þetta alveg rétt hjá þér enda skilst mér að það hafi verið Sigga sem sópar í Samgönguráðuneytinu sem tók endanlega ákvörðun um þetta.  Hún verður rekin fljótlega.

Jóhann Elíasson, 12.3.2011 kl. 20:45

3 identicon

Blessaður

Athyglisvert að fylgjast með skrifum þínum um Landeyjahöfn sem þú finnur allt til foráttu ,ég er borin og barnfæddur  Vestmannaeyingur og ekki kannast ég við að hafa rekist á þig þannig að trúlega ertu ekki Vestmannaeyingur. Við þig og aðra langar mig að segja mikið erum þið íslendingar heppnir að eiga svona marga verkfæðinga, alveg ótrúlegt að hrunið skyldi hellast yfir okkur við sem erum svo rík af fólki með þekkingu á nánast öllu,hvað mig varðar er Landeyjahöfn það besta sem fyrir Vestm.eyjar hefur komið frá því að við fengum vatnið. Auðvita gerðum við okkur grein fyrir að þessi höfn eins og aðrar strandhafnir án þess að þurfa að taka tillit til eldgos búa við ákveðna byrjunarörðuleika sem verða leystir hér  eins og annastaðar .Og varðandi kostnaðinn þá ættir þú að  skoða útfluttningstekjur og skattatekjur sem frá Vestmannaeyjum koma þar sem fólk vinnur við sjavarútveg og skammast sín ekki fyrir það ,og við erum bara þakklát fyrir að geta lagt okkar að mörkum við að ná íslandi upp úr þessari kreppu sem við áttum engan þátt í að koma íslandi í.Og að endingu vertu  velkomin til Vestmannaeyja frá Landeyjahöfn því hún mun verða okkar lyftistöng í samgöngumálum þegar fram líða stundi.

Sólveig Adólfsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 21:21

4 identicon

Ég legg til að samið verði við Dofra og þá Suðurverksmenn  um að sjá um dælingu á hafnarsvæðinu. Þeir stóðu sig frábærlega vel í sambandi við hafnargerðina og  skila     sínum verkum með sóma og hafa alltaf gert. Ekkert væl þar.

Olgeir Engilb. (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 21:41

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sólveig, hvað hefur þú eiginlega verið að drekka?????  Það er rétt hjá þér að ég er ekki Vestmannaeyingur, ég sé það ekki fyrir mér að ég komist nokkurn tíma til Vestmannaeyja um Landeyjahöfn, en samt sem áður er ég ekki í minnsta vafa um að ég þekki aðstæðurnar úti fyrir suðurströnd landsins mun betur en þú.  Hvernig getur ónothæf höfn verið góð fyrir Vestmannaeyjar?????????

Jóhann Elíasson, 12.3.2011 kl. 21:44

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er sorgarsaga og er að verða alltof dýr fyrir landsmenn alla.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2011 kl. 21:53

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það mætti halda af skrifum Sólveigar að suðurstrandarsandurinn, stærsti sandkassi Evrópu, hafi ekki verið til fyrir Eyjafjallagosið. Enginn sem gagnrýnt hefur þessa hafnargerð hefur, svo ég viti til, gert það til að gera lítið úr Eyjamönnum eða mikilvægi þeirra í þjóðarbúskapnum.

Þörf Vestamannaeyinga fyrir bættum samgöngum, sem þeir eiga fullan rétt á til jafns við aðra, réttlætir auðvitað ekki hvaða heimsku sem er. Ekkert, sem gerst hefur fram að þessu, hefur bent til annars en Landeyjarhafnarframkvæmdin sé eitthvað annað en hreinræktuð heimska. Eins og Jóhann bendir á, er vandséð hvernig lokaður vegur getur talist til bættra samgangna.

En auðvitað skulum við vona hið besta.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.3.2011 kl. 22:57

8 identicon

"á sandi byggði heimskur maður höfn" stoppa þarf þetta RUGL strax

Kristinn J (IP-tala skráð) 13.3.2011 kl. 09:35

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið, það er mér ráðgáta hvernig nokkur manneskja búsett eða ekki búsett í Vestmannaeyjum geti talað um Landeyjahöfn sem góðar samgöngubætur????????

Sigurður Haraldsson, 13.3.2011 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband