ÁTTI EKKI AÐ VERÐA HEIMSENDIR Á HÁDEGI Í DAG???????

Það er kannski ekki alveg að marka hjá mér, sonur minn var að útskrifast sem stúdent frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði akkúrat á þessum tíma, þess vegna hef ég bara misst af öllum ósköpunum því ég var svo upptekinn að hugsa um annað.  En svo sagði yngri sonur minn það að heimsendirinn hefði orðið ég hefði bara ekki orðið var við það því allir "VERÐUGIR" (annað orð yfir góðar sálir) hefðu farið til himna en allir aðrir hefðu bara orðið eftir á jörðinni og þurfi að standa áfram í sama baslinu og verið hefur.  Líklega er þetta rétt hjá honum því ég sá í fréttunum að Heilög Jóhanna er ennþá forsætisráðherra og til að fullkomna lánleysi okkar Íslendinga geri ég ráð fyrir að Gunnarsstaða-Móri sé enn Fjármálaráðherra og svo er víst hafið gos í Grímsvötnum...........

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta var víst allt í plati. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2011 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband