Í HEILDINA GETUR HANN VERIÐ MJÖG ÁNÆGÐUR MEÐ FORSETAÁRIN....

Hann hefur verið umdeildur þau 16 ár sem hann hefur verið á forsetastóli og hann hefur haft mikil áhrif á embættið.  Það fer eftir því hvar menn standa í pólitík, hvort þau áhrif verða talin til góðs eða ills og á sennilega seint eftir að fást niðurstaða í þau mál.  Ég hef alltaf talið að það eigi að hætta á "toppnum", ég held að hr. Ólafur Ragnar hafi þjónað landi sínu vel, hann neitaði fjölmiðlalögunum um staðfestingu og sýndi þar með stjórnmálamönnunum fram á að "ekki sé sopið kálið þótt í ausuna sé komið" og ekki skuli vanmeta 26 greinina í stjórnarskránni (þó svo að forverar hans í embætti hafi ekki haft kjark til að nota hana).  Síðar gerði hann það að hann BJARGAÐI okkur frá Ices(L)ave-ánauð "Ríkisstjórnar Fólksins" EKKI BARA EINU SINNI HELDUR TVISVAR. Svo hefur hann verið óþreytandi við að tala málstað landsins á erlendri grundu, sem er meira en hægt er að segja um ríkisstjórnarmeðlimina.  Já Ólafur þetta verða yfir höfuð góð 16 ár, þótt vissulega sé sitthvað sem hefði betur mátt fara, en hver kemst í gegn um 16 ára feril án þess að hrasa við á leiðinni, er þetta ekki bara orðið ansi gott, er ekki bara best að hætta með reisn?????? 
mbl.is Forsetinn á allra vörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þegar að Jóhanna hefur komið í gegn frumvarpi sínu um einræði forsætisráðherra er Óli sá eini sem eftir stendur til að koma í veg fyrir að við verðum einræðisríki.

Óskar Guðmundsson, 10.9.2011 kl. 18:18

2 identicon

Ólafur þarf núna að steipa þessari stjórn áður en hún rústar forsetavaldi.  64.grein þarf að beyta núna! (64.eða 68gr? er ekki viss)

anna (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband