RÆFILSTUSKAN...............

Það er nú ekki alveg rétt farið með hjá Mogganum:BJÖRN VALUR HAFÐI ALDREI "MANNDÓM"Í SÉR TIL AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR Á UMMÆLUM SÍNUM UM FORSETANN.  Nú gengur þessi mesti RÆFILL  og MANNLEYSA mannkynssögunnar og kallar alla, sem ekki sitja og standa eins og hann vill, RÆFLA.
mbl.is Kallar Berlusconi „ræfil“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Það er kannski af því að ég er Norðlendingur eins og Björn Valur en mér finnst hann í raun alls ekki vera að kalla Berlusconi ræfil, né heldur forsetann. Þegar maður segir 'Jón ræfillinn' þýðir það nokkurn veginn það sama og 'Jón greyið'. Það er sem sagt nokkur vorkunn í notkuninn en alls ekki er verið að kalla mennina ræfla. Það er nefnilega mikill munur á því að segja 'Jón ræfillinn' eða að segja 'Jón er ræfill'. Tvennt ólíkt. En kannski er þetta norðlenska, ég veit það ekki. Á Austurlandi segir fólk t.d. 'skepnan mín' og er það gæluorð og ekkert í líkingu við 'Jón er skepna'. Við megum ekki gleyma því að málið er lifandi og orðanotkun er ekki alltaf sú sama. Alla vega sé ég ekkert athugavert við þetta og skil ekki af hverju blöðin gera svona mikið mál úr þessu. Ég er viss um að hægt væri að taka miklu fastar í árinni en þetta hvað Berlusconi varðar.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 20.9.2011 kl. 15:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei það er alls ekki þannig að blöðin séu að gera mikið úr þessu.  Ég ólst nú sjálfur upp fyrir Norðan og þó að eitthvað sé notað "lokalt", þá eru þau orðatiltæki EKKI flutt í ræðustól Alþingis, það er bara svo einhallt.  Svo er algjört lágmark að menn biðjist afsökunar á ummælum sínum en það hefur Björn Valur ekki haft manndóm í sér til að gera.  Áður en hann fer að hnýta í erlent fólk ætti hann að einbeita sér að úrlausn mála hér á landi sem nóg er af.

Jóhann Elíasson, 20.9.2011 kl. 15:52

3 identicon

Nú fer að verða spurning hver á að biðja hvern afsökunar. Er það ekki óvirðing gagnvart hæstvirtum þingmanni að kalla hann ræfil og mannleysu? Nú eru einhverjir farnir að bíta í afturendann á sér

Guðmundur (IP-tala skráð) 20.9.2011 kl. 16:28

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, það er ekki sama hvort þú kallar einhvern ræfil og það þjóðhöfðingja landsins úr ræðustól Alþingiseða á einhverjum á óopinberum stað.  Nú ert þú eitthvað farinn að gefa þig andlega...

Jóhann Elíasson, 20.9.2011 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband