HÚN VAR NOKKUÐ LENGI AÐ ÁTTA SIG Á ÞESSU.......................

Peningastefnan hjá henni er og hefur engin verið frá upphafi, henni hefur ekkert gengið að koma atvinnulífinu af stað, landflóttinn hefur ekkert minnkað - aukist ef eitthvað er, "velferðarkerið" er ekki svipur hjá sjón,................. VIÐ HÖFUM BARA EKKI EFNI Á ÞVÍ AÐ ÞESSI RÍKISSTJÓRN VERÐI LENGUR - HÚN ER BÚIN AÐ VERA OKKUR NÓGU OG DÝR HINGAÐ TIL það er tími til kominn að segja: "HINGAÐ OG EKKI LENGRA".................
mbl.is Móta þarf nýja peningastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvernig eigum við að fara að því að setja Ríkisstjórninni stólinn fyrir dyrnar?

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 21:06

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skrifa undir óskir um utanþingstjórn sjá hér: http://utanthingsstjorn.is/ Þetta er allavega byrjunin.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.10.2011 kl. 21:45

3 identicon

Já þetta er ekki góð ríkisstjórn en vandamálið er í raun að grundvallarefnahagsforsendurnar fyrir velferðarkerfinu eins og við þekkjum það eru í raun brosnar og raunar er búið að troða okkur í svo miklar skuldir að velferðarkerfið verður í raun ekki nema svipur hjá sjón. Aldursamsetning þjóðarinnar þar sem stórir árgangar fara eftirlaun og þurfa aukna heilbrigðisþjónustu og gera miklu meiri kröfur en fyrri kynslóðir. Frysting heilbrigðisútgjalda mun þýða gríðarlegan niðurskurð miðað við það sem fékkst fyrir þá upphæð fyrir 10 árum síðan. Kostaður við öldrunarþjónustu mun margfaldast.

Lífeyrisgreiðslur ríkisins munu gjörsamlega sliga ríkisreksturinn á næstu árum og leggjast ofan á skuldabyrðina og það þarf að niðurfæra lífeyrisgreiðslur allra lífeyrisþega sem mun í raun þýða það að stór hluti landsmanna fær allt annað líf í ellinni, en það hafði ímyndað sér.

Þjóðin hefur vanist því að hafa ein bestu lífskjör í heimi en það er ekkert "garantí" að það verði svo um alla framtíð. Sú kynslóð sem nú er að alast upp á eftir að upplifa að hafa það verra en fyrri kynslóð.

Spáið í það að unga fólkið á að greiða í gjaldþrota lífeyriskerfi koma inn á ofmetinn húsnæðismarkað á láglaunasvæðinu Íslandi sem að óbreyttu á erfitt að keppa um fólk. Fjárfesting í atvinnulífi er í algjöru lágmarki og hefur ekki verið lægri lýðveldistíman.

Það eru um 50% fyrirtækja sem eru beint á framfæri banka og í raun gjaldþrota.

Síðasta skoðanakönnunin sýnir í raun að traustið á Alþingi er um 11%, traustið á stjórninni er um 14% og stjórnarandstöðunni er 13% meðan hmm.. 19% treysta ESB, já spáið í því.... og þrátt fyrir fréttir um efnahagsvandræði Grikklands og annara ríkja sem gætu í raun riðið evrusvæðinu að fullu og hvort þeim tekst að bjarga þessu eða hvort þessi "líkvaka" yfir

Gunnr (IP-tala skráð) 27.10.2011 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband