ER ÞÁ EKKI "RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS" FORMLEGA KOMIN MEÐ MINNIHLUTA Á ÞINGI????

Nú þegar það er komið alveg á hreint að það er ekki nokkur möguleiki á að það náist að þröngva stjórnarskrárfrumvarpinu í gegn um þingið á þessum fáu dögum sem eru eftir.  Þá hætta þingmenn Hreyfingarinnar að styðja stjórnina og eitthvað eru þeir Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall orðnir "tæpir" (það eru svo sem engar fréttir að þeir séu tæpir).  Er þá nokkuð annað í stöðunni en að bera upp vantraust og þegar það hefur verið samþykkt, þá bara að kjósa þetta lið í burtu í eitt skipti fyrir öll.......
mbl.is Ekki tími til að vinna úr athugasemdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Óskhyggja þín er gífurleg nafni.

Heldur þú virkilega að Margrét, Birgitta og þór Saari tými að missa þingmannalaun og öllu sem því fylgir? Þetta fólk hefur ekki snefil af samvizku eða/og mandóm, hugsar bara um sjálft sig.

Guðmundur Steingrímsson og Robert Marshall gera bara eins og kellingin í (SF) segir þeim að gera, svo mikið er vízt.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 13.2.2013 kl. 01:13

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Tek undir með Jóhanni.

Halldór Jóhannsson, 13.2.2013 kl. 07:13

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nú í lagi að láta sig dreyma..........

Jóhann Elíasson, 13.2.2013 kl. 09:09

4 Smámynd: Sandy

Ekki hægt annað en að taka undir þetta. En eru einhverjir að halda að það hafi verið einhver meining í því í upphafi að breyta Stjórnarskránni í heild NEI, NEI það eina sem þessi stjórn vildi var að ná fram möguleikum á að breyta ákvæðinu um framsal fullveldis og málskotsrétti forseta, enda kom það berlega í ljós hvaða kafla í stjórnarskrá þetta guðs volaða þing vill breyta sjálfum sér og sínum í hag, þegar umræðan var um að taka út ákveðna kafla og samþykkja þá sérstaklega.

Sandy, 13.2.2013 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband