OG ENN ER HERT Á ÞVÆLUNNI OG VITLEYSUNNI.................

En það virðist ekki vera að það séu nein takmörk fyrir rangfærslunum og bullinu sem INNLIMUNARSINNAR láta frá sér.  Í gær las ég grein í Morgunblaðinu eftir Gunnar Hólmstein Ársælsson og ber þessi grein nafnið "Pakkann skuluð þér ekki sjá".  Þessi maður titlar sig stjórnmálafræðing en það er ekki að sjá annað en hann hafi fengið Stjórnmálafræðingsgráðuna sína í Coco-Puffs pakka, miðað við skrifin og ruglið.  Hann talar um að í "pakkanum" frá ESB gæti verið margt gott eins og t.d; "Lægri vextir, minni verðbólga, nothæfur alþjóðlegur gjaldmiðill, mögulegt afnám verðtryggingar, frjáls og óheftur aðgangur að markaði 550 milljóna manna fyrir allar íslenskar vörur, raunveruleg byggðastefna, aukin tiltrú á Íslandi, möguleiki á aukinni erlendri fjárfestingu, aðkoma að mikilvægustu ákvörðunum á sviði eins og umverfismálum, almennri lagasetningu og fleira".  Svo klingir hann út með að spyrja:  "ER STÓRHÆTTULEGT AÐ KÍKJA Í PAKKA SEM MÖGULEGA GÆTI INNIALDIÐ ÞETTA"?  Bara það  eitt að setja málið svona fram segir að annað hvort er maðurinn vísvitandi að beita blekkingum eða þá að hann hreinlega veit ekki betur og hvað hefur hann þá lært í stjórnmálafræðinni sinni?  Ef skoðaðir eru þeir INNLIMUNARSAMNINGAR, sem hafa verið gerðir hingað til, er hægt að sjá það að ENGINN ÞEIRRA INNIHELDUR EITT EINASTA ATRIÐI AF ÞVÍ SEM HANN TALDI UPP, sem hugsanlegt innihald "pakkans"......  Því eins og allir vita þá er það RÓMARSÁTTMÁLINN sem er grunnurinn að ESB og á honum grundvallast Evrópusambandið OG FRÁ RÓMARSÁTTMÁLANUM VERÐUR EKKI HVIKAÐ.  Því er það tómt mál að tala um einhverjar "samningaviðræður" milli Íslands og ESB, því eingöngu er um að ræða þar hversu hratt Ísland getur uppfyllt SKILYRÐI ESB fyrir INNLIMUN. Nú er búið að LOKA nokkrum köflum og segir það sig ekki sjálft að þar er kominn "samningur" eða í það minnsta hluti af samningi? Hvernig stendur á því að alþjóð fær ekki að sjá þetta og þar með að ákveða hvort þetta gefi fyrirheitt um það að ÁFRAM skuli haldið??????

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er verið að  reynda að telja okkur trú um að andstæðingar ESB þori ekki að bíða og sjá.  Þegar málið er að við viljum spyrja þjóðina NÚNA hvort hún vilji halda áfram innlimunarferlinu eða hætta.  Það er komin alveg næg vitneskja um hvað felst í pakkanum, þar er ekkert nema loft í fallegum umbúðum.  Það kemur skýrt fram í skýrslunni sem ESB sendi þingmönnum þjóðarinnar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2013 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband