MEÐ ÖÐRUM ORÐUM "SETJA SKIPIÐ NÁLÆGT SINNI UPPHAFLEGU HÖNNUN"

Samkvæmt upphaflegri teikningu átti Herjólfur að vera nokkrum metrum lengri (ég man ekki alveg hversu  margir metrarnir áttu að vera.  Ef einhver man það væri vel þegið að hann léti vita).  En það var talið betra að stytta skipið, svo betra yrði að athafna sig á því í höfninni í Eyjum og líka þótti skipið óþarflega stórt.  En eins og flestir vita þá eru allar stærðir í upphaflegri hönnun þess miðaðar við hámarks hæfni þess til siglinga þannig að um leið og einhverjum stærðum er breytt skerðist sjóhæfni skipsins.  Þetta hefur verið vitað lengi og því á það alls ekki að vera pólitísk ákvörðun hvort átt er við teikningar skips eða ekki.  Það á þá bara að teikna minna skip ef þess þarf............
mbl.is Breyti Herjólfi til að hann snúist síður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott og vel að hægt sé og vert sé að breyta skipinu en hefur það einhver áhrif þegar um er að ræða gríðarlega krafta sem eru að verki í innsiglingunni við landeyjarhöfn? minna skip, á við Baldur er líka glapræði því það getur ekki farið jafn oft og þó herjólfur við núverandi aðstæður kemst. það þarf bara að hanna almennilegt skip eða að breyta höfninni eða þá að byrja að sigla aftur til þorlákshafnar sem þó er hægt að komast í nánast í öllum veðrum.

þórarinn (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 17:59

2 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

http://www.rikisendurskodun.is/fileadmin/media/skyrslur/floabat.pdf

Skipið var upphaflega hannað 79 m af danskri stöð.  skipatækni hannaði svo 8,5 metra styttra skip upp úr dönsku hönnununni, en svo þurfti að breikka skipið um 1 metra vegna meiri kröfu um lekastöðuleika skipsins,  Síðan var pólítískur skítur í útboðsferlinum miðað við þessa skýrslu ríkisendurskoðanda frá 93.

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 4.1.2014 kl. 19:59

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eru þá ekki þessar breytingar, sem verið er að tala um að gera, eitthvað sem er alveg út í loftið, Þórarinn???  Ég er algjörlega hlynntur því að siglt verði áfram til Þorlákshafnar, enda getur þú séð allt sem ég hef skrifað um þetta mál og liggur það meira og minna í þá átt.  Landeyjahöfn er og verður ekkert annað en sumarhöfn og það með ærnum tilkostnaði....

Ég þakka þér kærlega fyrir þessar upplýsingar Hallgrímur. 

Jóhann Elíasson, 4.1.2014 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband