NÚ ERU "FRÆNDUR OKKAR OG VINIR" NORÐMENN NOTAÐIR SEM GRÝLA Í MAKRÍLDEILUNNI.....

Ætli ástæðan sé ekki sú að þeir hafa sýnt mun meiri óbilgirni í viðræðunum og þeir eru mun harðari í afstöðu sinni gegn Íslandi og Færeyjum en ESB.  Og þar með undirstrika þeir "AÐ FRÆNDUR ERU FRÆNDUM VERSTIR".................
mbl.is Hótar refsiaðgerðum vegna markrílsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það eru einhver ár síðan Kári í Íslenskri erfðagreiningu tilkynnti um niðurstöðuna á rannsóknum á erfðamengi okkar sem sýndi að við erum vart skyld þessum norðurlandaþjóðum svo nokkru nemi. Við munum vera skyld frökkum, írum og slíkum. Geir Haarde er óumdeilanlega skyldur norðmönnum sem og aðrir slíkir en við hin erum það ekki.

Við áttum hins vegar frænda sem var forseti Bandaríkja Ameríku, Ronald Wilson Reagan, en amma hans var brottfluttur skagfirðingur.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.1.2014 kl. 21:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef fundið mun meiri samsvörun með Skotum og Írum en Norðmönnum.  Hef dvalið í þessum þrem löndum, mislengi þó...............

Jóhann Elíasson, 28.1.2014 kl. 21:27

3 identicon

Hvor amman var það í föður eða móðurætt?

  Jennie CUSICK1 was born about 1854 in Dixon, Lee Co., IL. She died of tuberculosis on 19 Nov 1886 in Whiteside Co., IL.

 Mary Anne Elsey Wilson was born in England and immigrated to the US to
work as a domestic servant.

Kannski að Prédikarinn geti leiðrétt þetta!

reagan family tree

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 21:35

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þessi ættfærsla segir ekki alla söguna, enda á tíma þeim sem Reagan varð forseti þá var maður sem átti ömmu eða afa frá öðru landi en Bandaríkjum Ameríku nánast talinn útlendingur og gat ekki boðið sig fram til forseta. Það var helsta ástæða þess að Henry Kissinger var ráðið mjög ákveðið frá þvi að bjóða sig fram til forseta, en hann var af mörgum hvattur til þess einniog langaði það sjálfum.

Önnur af þessum á listanum sem þú settir inn, Jenny eða Mary Ann, eru þá sú íslenska en búið að gera nafnið meira Amerískt svo það sjáist ekki.

Fréttamenn frá Bandaríkjum Ameríku voru spurðir um það á Reagan/Gorbachev ráðstefnunni í Höfða hvort þeir þekktu til þessara tengsla svöruðu því játandi. Reagan hélt fund með forystumönnum fréttamiðla Bandaríkja Ameríku þegar hann tók við embættinu og bað þá um að ræða þetta aldrei af fyrrnefndri ástæðu. Þeir lofuðu því vegna þess að Reagan hafði ávallt gefið sér tima til að ræða við fréttamenn og svarað þeim samviskusamlega og aldrei skorast undan eins og mörgum stjórnmálamönnum er tamt. Þess vegna samþykktu þeir þetta.

Ættfræðiþjónustan ORG er með ljósrit af fæðingarvottorði kirkjubókarinnar um ömmuna áður en sendiráð Bandaríkja Ameríku fékk að fjarlægja það úr bókunum á sínmum tíma.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.1.2014 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband