VARÐAR EKKI VIÐ LÖG AÐ SKEMMA PENINGA??????

Ég er ekki alveg viss um hvort þetta er rétt en ef svo er er það alveg fyrir neðan allar hellur að Forseti Alþingis skyldi ekki gera athugasemd við athæfi þingmannsins og að svona lagað geti átt sér stað á þessari stofnun.  Svo eru menn hissa á því að virðing Alþingis sé lítil............
mbl.is Reif 10.000-kalla í sundur á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það virðist vera lítið mál að skeyta blöðunum saman með límbandi.  Hins vegar hefði forseti Alþingis mátt gera athugarsemd við lélegan ræðustíl.  Hvernig hann fór með íslenskt mál var ekki til fyrirmyndar.

Hilmar (IP-tala skráð) 11.4.2014 kl. 22:03

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei það varðar ekki við lög að skemma einkaeigur sínar.

Hver er virðing Alþingis af því að fara svona með 600 milljónir sem fóru í þessu skýrslugerð, að brenna hana upp með 4 klst umfjöllun daginn eftir að skýrslan er birt og enginn hefur haft ráðrúm til að kynna sér hana?

Svo rífur einhver 30þús kr. til að sýna fram á það og þá snappar bloggheimur út af því en ekki 600 milljónunum.

Skringilegt.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.4.2014 kl. 01:30

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Guðmundur, þú verður að kynna þér lögin betur.  Húseigandinn á Álftanesi hlaut dóm fyrir eignaspjöll t.d.  Það er eigin lega ekki hægt að túlka lögin eins og manni sýnist og eftir því hvernig vindar blása.

Jóhann Elíasson, 12.4.2014 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband