OLÍUFÉLÖGIN BJÓÐA ÍSLENDINGUM UPP Í SAMRÁÐSDANS.

Það kom hérna upp smávægileg samkeppni á eldsneytismarkaðinn í byrjun árs 2004, þegar Atlantsolía kom inn á markaðinn, en sú samkeppni var einungis bundin við bensínstöðvar sem voru í nágrenni við bensínstöðvar Atlantsolíu á höfuðborgarsvæðinu.  Og þessi samkeppni stóð aðeins yfir í nokkra mánuði.  Að þessum tíma liðnum voru ÖLL olíufélögin með verð upp á sömu krónutölu einungis er nokkurra aura munur á milli þeirra verða sem eru í gangi.  Það er akkúrat ekki neitt sem kemur í veg fyrir VERULEGA VERÐLÆKKUN á eldsneyti á næstunniHvert er eiginlega hlutverk SamkeppniseftirlitsinsLátum við endalaust bjóða okkur svona lagað?


mbl.is Neytendur njóta varla verðlækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki gamla afsökunin, við kaupum allt inn í dollara. og hann hefur hækkað svo mikið.

eða. við vorum nýbúnir að panta tankskip, þegar lækkunin kom fram.

Allavega eru GRÆÐGIS sjónarmið sem ráða, Af hverju njóta önnur lönd þessara lækkana ? eru íslendingar EINA landið sem kaupir inn í dollurum ?

Af hverju eru ekki fréttamenn með klærnar á þessu liði ?

Og svo ofaná allt kemur 1, lesist EITT skip með bensín og dísil til íslands með farm handa ÖLLUM olíufélugunum...ÖLLUM..Þetta er nú samkeppnin.

Af hverju er þetta leyft ? Enn og aftur FRÉTTAMENN !! Vinnið vinnuna ykkar.

Ætli yrði ekki eitthvað sagt ef sami gámur kæmi með vorur handa Bónus og Krónuni !! Þá yrði allt brjálað.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 5.8.2015 kl. 19:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fréttamennirnir eru uppteknir við að fjalla um opnun einhverrar kleinuhringjaverslunar á Laugaveginum og mega ekkert vera að því að sinna svona löguðu..........

Jóhann Elíasson, 5.8.2015 kl. 19:43

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þær voru sérstaklega "trúverðugar" útskýringar forstjóra olíufélaganna á því hvers vegna eldsneytisverðið hefði ekki lækkað meira en raun ber vitni hér á landi.  Þegar þeir voru spurðir álits í fréttum kl22:00 í kvöld á RÚV (reyndar voru bara forstjórar OLÍS og SHELL sem fengust í viðtal).

Jóhann Elíasson, 5.8.2015 kl. 22:24

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég var ein af þeim sem skellti mér í að skipta við Atalantsolíu,er það svona langt síðan?-- Nú senda þeir öðru hvoru tilkynningu með SMS,að það sé 13.kr afsláttur af lítra þann daginn. Lendi oft á að geta ekki notað það.Gefa síðan síða á afmælisdegi lykilhafa

Helga Kristjánsdóttir, 6.8.2015 kl. 04:01

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi tilboð eru líka hjá ÓB og N1, með öðrum orðum öll olíufélögin eru með þetta.  Það klikkar ekki að það byrjar oftast dagurinn á því að það kemur SMS frá ÓB um þetta tilboð og svo svona hálftíma seinna kemur SMS frá N1 að það sé sama tilboð í gangi þar.  Það er svo athyglisvert að það hafa verið nokkuð margir dagar með þessum tilboðum í júlí og ágúst.  Ég er á því að verðið á lítrann mætti lækka um 15-20 krónur og þá værum við að sjá verð sem væru nokkuð nærri lagi.

Jóhann Elíasson, 6.8.2015 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband