Á þetta atriði ekki að eiga við ALLA kjörna fulltrúa þjóðarinnar?????

Sem dæmi má nefna að Gunnarsstaða Móri (Steingrímur J. Sigfússon), hefur setið á Alþingi frá árinu 1983, eða í 33 ár samfellt.  Er þetta ekki of langt líka, þarf ekki að setja reglur um svona lagað? Birgitta Jónsdóttir sagði það að hún ætlaði að hætta Alþingissetu eftir þetta kjörtímabil, því tvö kjörtímabil væri "hæfilegur tími", en nú er þetta allt orðið breitt og "hæfilegur tími" er orðinn eitthvað lengri, að hennar mati.  Nú velta margir fyrir sér hversu langur "hæfilegur tími" sé og hvort hann sé misjafn eftir því hvar fólk sé statt í pólitík.  Reyndar eru 20 ár mun styttri tími en 33 ár en er í sjálfu sér svo mikill munur á hvort menn eru kosnir til setu á Alþingi eða til setu á Bessastöðum (það eru klárlega falin í því meiri völd að vera á Alþingi)?


mbl.is Forseti sitji ekki of lengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nafni ertu viss um að Gunnnarstaðamóri hafi ekki setið á þingi síðan 1883? Móri greyið lýtur þannig út, svolítið útjaskaður.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.4.2016 kl. 20:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það gæti svo sem alveg verið.  En það er nokkuð víst að það eru fáir eða engir sem hafa reynst þjóðinni jafn dýrkeyptir og unnið eins mikinn skaða og hann á sinni þingsetu.

Kveðja af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 20.4.2016 kl. 03:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband