HVERSU LANGT ERU MENN TILBÚNIR TIL AÐ FARA Í "SKÍTGREFTRINUM"?

Það er með ólíkindum að sjá svona lagað.  Eiga þá þingmenn ekki að gefa upp í hagsmunaskrá sinni eignir afa síns (það er að segja ef hann er ekki fallinn frá), þarna gætu skapast hagsmunir seinna meir og ég tala nú ekki um ef afinn er stóreignamaður og aldrei að vita hvar hann hefur potað aurunum sínum.  Svo skilst mér að forfaðir eins þingmanns hafi verið sakaður um sauðaþjófnað, en sá áburður var aldrei sannaður.  HVERSU LANGT Á EIGINLEGA AÐ GANGA Í ÞESSARI "NORNAVEIÐI"?


mbl.is Fjölskylda Dorritar átti aflandsfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það fer varla nokkur maður að kjósa aflands forseta, er það nokkuð Jóhann..?

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 25.4.2016 kl. 19:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hver er aflandsforseti?  Þú þarft aðeins að aðgæta hvað þú segir,"Ferkantaði Leðurhausinn" þinn..... wink

Jóhann Elíasson, 25.4.2016 kl. 20:03

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Ætlaði varla að þora í þig, en læt slag standa Jóhann minn. Báðir myndu við eiga aflandsfélög, hefðu við tök á því, en forsetinn, og aðrir þjóðkjörnir er allt önnur ella, um það sníst málið. Face it:)

Jónas Ómar Snorrason, 25.4.2016 kl. 20:18

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jónas Ómar, ég veit að þið vinstri menn hafið horn í síðu forsetans en gangið þið ekki full hart fram í því að henda skít í hann?

Jóhann Elíasson, 25.4.2016 kl. 21:02

5 identicon

Halló.  Á að gefa einum afslátt en ekki öðrum?  Hvaða fíflaskapur er þetta? Þeir sem tengjast þessum Aflandsfélugum á einhvern hátt eiga að víkja. Bjarni Ben, Ólöf Nordal, Sigmundur Davíð, ólafur Ragnar og margir fleiri. Þá ætti einnig að rannsaka hvernig þeir féĺagar Össur Skarphéðins og Árni Þór voru svo "rosalega" heppnir að koma sér í skjól frá SPRON á sínum tíma á "réttum" tíma eins og meðal annara Bjarni nokkur Ben. 

Hér ganga menn og konur um og verja sína drullusokka út fyrir endimörk alheimsins en á sama tíma drulla þeir yfir pólitíska óvini fyrir sömu gjörðir. 

Veriði nú pínulítið málefnalegri börnin mín

thin (IP-tala skráð) 25.4.2016 kl. 21:50

6 identicon

Sæll Jóhann Stýrmaður - sem og aðrir gestir, þínir !

Nafni minn Jónsson (kl.19:44) og Jónas Ómar !

Á meðan: þið fáist hvorugur til, að FORDÆMA Jóhönnu og Steingríms J. klíkuna (2009 - 2013), á þá SJÁLFSÖGÐU vegu, og ömurlega arftaka þeirra : Sigmund Davíð / Bjarna og Sigurð Inga, en haldið uppi af stráksskap einum, að senda einum minna beztu vina hér á Mbl. vefnum:: Jóhanni Elíassyni tóninn, með háði og spéi, teljist þið alveg á mörkunum, að vera marktækir, yfirleitt: piltar.

Jóhann Stýrmaður !

Hins vegar: má ég til að nefna við þig:: Ólafi Ragnari Grímssyni, hefir tekist alveg hjálparlaust, að afklæðst þeim Dýrðarhjúp, sem allt of margir hafa viljað skrýða hann, a.m.k, frá árinu 1996, fornvinur góður.

Ólafur Ragnar - er SAMSEKUR alþingi / stjórnarráði og ísl. Banka Mafíu, í aðförum og eyðileggingum þeirra, á fjölda heimila og fjölskyldna, í landinu.

Honum hefir verið: TIL ÞESSA DAGS, í lófa lagið, að bregða verndarhendi yfir fólkið, sem níðingarnir hafa troðið ofan í svaðið, með einfaldri tilskipan - HEFÐI HANN NENNT: og viljað hreyfa sig, til þess.

Ólafur Ragnar Grímsson - verðskuldar því, ekki minni háðung og sneypu, en það lið, sem hann hefir ALLA TÍÐ siglt með, á sínu mis- leka fleyi !!!

Manstu Jóhann: þegar við vorum yngri (í kringum 1970), þegar Hrói Höttur var sýndur í Ríkissjónvarpinu svart/hvíta þáverandi - þá stóð maður, með þeim Hróa og Litla- Jóni / gegn Fógetanum af Nottingham, og skattheimtu mönnum hans.

Ég er - alveg sama sinnis í dag, og á þeim árum, Jóhann minn / alþýðunnar megin, gegn frekju og yfirgangi burgeisanna.

Með beztu Falangista kveðjum: sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.4.2016 kl. 21:58

7 Smámynd: Skeggi Skaftason

Dorrit er ekki afi Ólafs Ragnars. Hún er eiginkona hans.

Ólafur FULLYRTI bara fyrir nokkrum dögum að hvorki hann NÉ hún tengdust aflandsfélagi!  Hún flutti lögheimili sitt frá Íslandi fyrir þremur árum til að taka við rekstri fjölskyldufyrirtækisins, en fyrortækið hefur notað aflandsfélag fyrir milljarða fjárgjörninga.

Skeggi Skaftason, 25.4.2016 kl. 23:37

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Skeggi yfirsauður, það var pabbi Dorrittar, sem stofnaði þetta félag.  ÓLAFUR RAGNAR HEFUR EKKERT MEÐ ÞETTA FÉLAG AÐ GERA OG ÞESSI ÁRÁTTA ÞÍN TIL KOMA EINHVERJUM SKÍT Á FORSETANN ER ENN EITT "PÚÐURSKOTIÐ" HJÁ ÞÉR.  Sættu þig bara við það að þú verður EKKI í forsetaframboði í þetta skiptið.... tongue-out

Jóhann Elíasson, 26.4.2016 kl. 02:32

9 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Samt hefur Skeggi nokkuð til síns máls Jóhann. Klappstýrur eru óvissukvendi.

Jónas Ómar Snorrason, 26.4.2016 kl. 05:09

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta verður þú að útskýra betur, Jónas Ómar.

Jóhann Elíasson, 26.4.2016 kl. 05:27

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Skeggi, það er eiginlega lágmark að menn hafi þann kjark og þor að koma fram undir sínu rétta nafni.

Jóhann Elíasson, 26.4.2016 kl. 06:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband