"RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS" HAFÐI "JÖFNUÐINN" AÐ LEIÐARLJÓSI Í SÍNUM AÐGERÐUM????

En formaður þingflokks LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR er að sjálfsögðu ekki tilbúinn til að rifja upp "afrekalista" þeirra ríkisstjórnar, sem hann studdi með kjafti og klóm.  Var mikill jöfnuður í því að færa erlendum vogunarsjóðum þrotabú bankanna á silfurfati með 50% afskriftum skulda heimilanna en svo áttu heimilin að greiða þessar sömu skuldir 100%Hver var jöfnuðurinn í hinni svokölluðu 110% leiðÍ hverju var jöfnuðurinn fólgin þegar síðasta ríkisstjórn stóð fyrir því að 9000 fjölskyldur misstu eignir sínar á uppboð og voru settar á leigumarkaðinnVar verið að skapa jöfnuð með því að rústa atvinnulífinu hér á landi á síðasta kjörtímabiliVar verið að auka hér jöfnuð með því að HÆKKA skatta og álögu upp úr öllu valdiÁtti að auka hér jöfnuð með því að láta þjóðina taka Ice(L)ave á sig?  Svona mætti lengi telja en þessi litla upptalning sýnir að sumum er aðeins hollara að hugsa áður en þeir opna þverrifuna á sér....


mbl.is „Ánægður með ójöfnuðinn?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vegna fjölda óska ætla ég láta það eftir mér að byrta afrekaskrá ríkisstjórnar frú Jóhönnu Sigurðardóttur:

    • Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.
      *

    • Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.
      *

    • Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta
      *

    • Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara
      *

    • Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu
      *

    • Vextir lækkuðu úr % í 5% á kjörtímabilinu
      *

    • Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð)
      *

    • Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.
      *

    • Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun.
      *

    • Lögðu á auðlegðarskatt
      *

    • Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum
      *

    • Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur
      *

    • Hækkuðu almennar vaxtabætur
      *

    • Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna
      *

    • Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða)
      *

    • Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk
      *

    • Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður
      *

    • Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða
      *

    • Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti lagasetningunni
      *

    • Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti
      *

    • Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það
      *

    • Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna
      *

    • Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað
      *

    • Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna
      *

    • Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra
      *

    • Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8
      *

    • Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8
      *

    • Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti
      *

    • Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda
      *

    • Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans
      *

    • Fækkuðu þingnefndum
      *

    • Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum
      *

    • Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti
      *

    • Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna
      *

    • Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður
      *

    • Lækkuðu dráttarvexti
      *

    • Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila
      *

    • Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011
      *

    • Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana
      *

    • Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%
      *

    • Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk
      *

    • Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%
      *

    • Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi
      *

    • Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur
      *

    • Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum
      *

    • Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni
      *

    • Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera
      *

    • Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús
      *

    • Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum
      *

    • Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjár-festingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af
      *

    • Hæddust ekki að almenningi
      *

    • Gerðu ekki grín að mótmælendum
      *

    • Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum
      *

    • Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka
      *

    • Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahags-ráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera
      *

    • Nokkuð gott. Ekki satt?".

    Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 10.10.2016 kl. 14:34

    2 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Helgi á hverju ertu eiginlega?  Hvert einasta atriði í þessari upptalningu þinni er einhver sá svæsnasti skáldskapur sem um getur.  Flest af þessu ætla ég að hrekja annað er svo vitlaust að ég nenni ekki að leggja mig niður við að koma nálægt þessari vitleysu.  Það er nokkuð augljós ástæðan fyrir því að LANDRÁÐAFYLKINGIN er komin niður í 6% fylgi ef stuðningsmennirnir eru flestir svona veruleikafirrtir eins og þú sýnir í þessari færslu.

      • Það voru afnumin þessi sérstöku lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna vegna þess að Guðlaugur Þór Þórðarson flutti það frumvarp og "Ríkisstjórn Fólksins" sá sér ekki annað fært en að samþykkja það.

      • Breytingin á lögum um Seðlabanka Íslands var EINGÖNGU gerð til höfuðs Davíð Oddssyni og flestir hafa ekki séð neinn árangur af þeirri aðgerð, þvert á móti er Seðlabankinn orðinn einangraðri eftir þetta.

      • Þetta atriði hangir með því á undan og þarna ertu væntanlega að tala um peningastefnunefndina sem er síður en svo sátt um.

      • Lögin um skipan dómara hafa ENGU breytt í ráðningarferlinu og eru frekar til óþurftar en hitt.

      • Verðbólga á kjörtímabili "Ríkisstjórnar Fólksins" var aldrei lægri en 4,6% og ástæðan fyrir því  var að makríll synti inn í Íslenska lögsögu, Það er nú ansi langsótt að þakka ríkisstjórninni það cool.

      • Það varð engin stýrivaxtalækkun á kjörtímabili "Ríkisstjórnar Fólksins".

      • Halli á rekstri ríkissjóðs náði aldrei 0 á kjörtímabili "Ríkisstjórnar Fólksins".

      • Skattar VORU hækkaðir á lægstu laun vegna þess að persónuafsláttur var óbreyttur þrátt fyrir miklar almennar hækkanir.

      • Auðlegðarskatturinn var algjört fiasko því hann kom mest niður á ellilífeyrisþegum sem voru búnir að nurla svo saman að þeir áttu skuldlausar eignir og lentu í vandræðum með að borga þennan nýja skatt frá "Ríkisstjórn Fólksins".

      • Allar aðgerðir "Ríkisstjórnar  Fólksins" til þess að aðstoða skuldsettan almenning misheppnuðust algjörlega og á endanum var það gefið út að öllum aðgerðum til að aðstoða almenna skuldara yrði hætt.

      • Hvaða atvinnu varði þetta lið?

      • Hvernig væri að þú útskýrðir á hvern hátt "Ríkisstjórn Fólksins" losaði okkur undan hryðjuverkalögunum?

      Restin er svo arfavitlaus hjá þér Helgi að það er ekki nokkur leið að svara þessu bulli þínu.

      Jóhann Elíasson, 10.10.2016 kl. 15:45

      Bæta við athugasemd

      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband