AUÐVITAÐ SPILAR INN Í HVERNIG "GÓÐA FÓLKIÐ" OG NO BORDER- LIÐIÐ TEKUR Á MÁLUM

Að sjálfsögðu ganga þessar "Tröllasögur" manna á milli í þessum löndum og gera það að verkum að þeir sem hugsa sér á annað borð til hreyfings, líta á það sem mjög vænlegan kost að fara til Íslands, því þar sé mjög auðvelt að spila á tilfinningasemi einhverra einfeldninga, sem í það minnsta hugsi afskaplega lítið.


mbl.is Yfir 300 hælisleitendur á 6 vikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Ég tel alveg eðlilegt að þeir þingmenn sem samþykktu þessi vanhugsuðu úlendingalög greiði þann kostnað sem til fellur vegna þeirra. Það er ekki endalaust hægt að ætlast til þess að þingmenn sem nenna ekki að kynna sér lög sem þeir samþykkja velti kostnaðinum yfir á aðra. 

Svokallaðir hælisleitendur munu streyma hingað því ekki þurfa þeir að vinna til þess að fá fjármuni og hér eru tómar liðleskjur sem stjórna sem auðvelt er að blekkja - eins og þú raunar ýjar að ef ég skil þig rétt.

Vandinn er þessi: Eru þessir svokölluðu flóttamenn að flýja bágborin lífskjör eða er líf þeirra í hættu? Ég hygg að yfirgnæfandi meirihluti þeirra falli í fyrri flokkinn.

Góða fólkið þarf að svara þeirri spurningu hvers vegna auðug olíuríki taka ekki við þessum svokölluðu flóttamönnum? Þar sem fjölmiðlamenn hafa upp til hópa afar lítinn metnað fyrir eigin hönd dettur þeim ekki í hug að athuga nokkur einföld atriði:

 - Þurfa þessir svokölluðu flóttamenn að borga eitthvað til að komast til Vesturlanda? Ef svo er, af hverju nota þeir ekki þá fjármuni í eitthvað uppbyggilegt sér og sínum til handa í heimalandi sínu?

 - Hvernig gengur þeim sem til Evrópu komu sumarið 2015 að finna sér vinnu?

 - Hverjir borga t.d. flugfarið fyrir svokallaða flóttamenn alla leið til Íslands?

 - Hvað kosta allir þessir svokölluðu flóttamenn hvern einasta skattgreiðanda hérlendis á næstu 3-5 árum eða svo?

 - Er víst að þessir svokölluðu flóttamenn muni aðlagast samfélaginu hér?

 - Hver hefur reynsla nágrannaþjóða okkar af svokölluðum flóttamönnum verið?

 - Hvað á að gera ef illa fer og þessir svokölluðu flóttamenn taka að láta dólgslega eftir fáein ár og aðlagast samfélaginu ekki?

 - Hver ber ábyrgð á því ef þessir svokölluðu flóttamenn fara að nauðga konum í talsverðu mæli líkt og gerst hefur í nágrannalöndum okkar? Hvað ætlar kæra Eygló að gera fyrir þær konur sem verða fórnarlömb þessara svokölluðu flóttamanna?

Helgi (IP-tala skráð) 18.10.2016 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband