ÆTLI ALLT ÞETTA FÓLK HAFI "LESIÐ" NÚVERANDI STJÓRNARSKRÁ???????

Eða segja þeir að ný stjórnarskrá sé "mikilvæg" vegna þess að einhverjir, sem þeir ætla hugsanlega að kjósa í næstu Alþingiskosningum, eru að halda því fram?????


mbl.is Meirihluti vill nýja stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Það efast ég stórlega um, enda hugsa ég, að málið snúist ekki um það. Ég gef afskaplega lítið fyrir þessar svokölluðu skoðanakannanir MMR(hvaða fólk er það annars, sem stendur fyrir því rugli?), því að þær virðast vera svo svipaðar frá könnun til könnunar. Allar nánast eins, finnst mér. Bæði skoðanakannanir MMR og Félagsvísindastofnunar eru á þá lund, að maður gæti ætlað, að fólkið, sem gerir þessar kannanir, hafi félagalista VG og Samfó og spyrji eftir því. Þá er ekki nema von, að svörin verði öðru vísi, en við blasa. Við gætum látið gera svona kannanir, og spurt bara kjósendur Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, haft svo einhverja úr vinstri liðinu líka, svona til þess að kannanirnar líti út fyrir að vera trúverðugar. En væri mikið mark á slíkum könnunum takandi? Myndu niðurstöður kosninga verða á sömu lund? Það stórefast ég um. Við getum bara sagt eins og Ingibjörg Sólrún sagði einu sinni við blaðamann, sem spurði hana, hvernig henni litist á einhverja skoðanakönnunina: "Þetta eru ekki kosningar, sem betur fer. Spyrjum að leikslokum." Sama er að segja í þessu samhengi, enda gætum við gert skoðanakönnun, þar sem stærsti hluti þjóðarinnar mundi ekki vilja heyra á nýja stjórnarskrá minnst. Svo að við getum andað rólega. Þarna er verið að spyrja einhverja þá "þjóð", sem við vitum ekki, hver er, og við tilheyrum greinilega ekki. Þess vegna finnst mér lítið vera að marka það, sem kemur frá MMR og Félagsvísindastofnun. Ég marka mest það, sem frá Gallup kemur. Annað finnst mér hin mesta markleysa, enda það marg sýnt sig, að Gallup hefur mestan trúverðugleikann. Spyrjum að leikslokum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2017 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband