Föstudagsgrín

Siggi, pabbi vinar míns, sá sumarbústað auglýstan til sölu og sá sem veitti upplýsingar í síma sagði að þetta væri ágætis bústaður.  Málið vandaðist hins vegar þegar Siggi spurði hvort það væri verönd við bústaðinn.-“Verönd, hvað er það?”-“Það er svona pallur þar sem maður getur setið úti og borðað”.-“Nei, það er ekkert svoleiðis”.-“En salernisaðstaða”?-“Það er fínasti kamar rétt hjá”.-“En ekkert klósett inni”?-“Nei”.Þá heyrðist húsfreyjan spyrja í bakgrunni hver væri í símanum.-“Æ, þetta er einhver kall að sunnan sem vill éta úti en kúka inni”............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Guðmundur og Jón reru saman á smábáti. Þeim hlekktist eitt sinn á í sjóferð. Guðmundur drukknaði, en Jón varð bjargað slösuðum og illa til reika. Þeir voru báðir tryggðir, og fékk Jón all-góðar bætur fyrir slysið og hrakningana. Kunningi hans sagði eitt sinn við hann, að hann hefði verið heppinn að fá bæturnar. "Meira fékk hinn, sem dó," svaraði Jón.

Sigurður I B Guðmundsson, 24.7.2020 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband