SVEI MÉR ÞÁ ÉG HELD ÉG HAFI ALDREI SÉÐ JAFN HÖRMULEGAN LEIK HJÁ LANDSLIÐINU Í HANDBOLTA......

Meira að segja var þessi leikur lélegri en leikurinn á móti Ungverjum á HM í janúar og er þá mikið sagt.  En eitt var þó jákvætt sem kom út úr þessum leik FRAMMISTAÐA LIÐSINS Á HM SKRIFAST EKKI Á GUÐMUND ÞÓRÐ GUÐMUNDSSON HELDUR SKRIFAST HÚN ALFARIÐ Á LEIKMENNINA OG ÞAÐ ER ALVEG LJÓST AÐ ÞAR VERÐUR MIKIL VINNA FRAMUNDAN.  Getur verið að leikmenn liðsins séu að "spara" sig þegar þeir leika fyrir Ísland svo þeir geti verið í góðu standi fyrir félagsliðið,  sem jú borgar launin þeirra???????


mbl.is Hroðaleg sóknarframmistaða í stóru tapi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Eru þeir kannski að mótmæla, að Guðmundur var látin fara.?

Haukur Árnason, 8.3.2023 kl. 22:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, Haukur það held ég ekki.  Þó svo að þetta sé slakasta frammistaða þeirra sem ég hef séð þá er hún á pari við frammistöðu þeirra á HM.  Nei vandamálið á sér dýpri rætur.....

Jóhann Elíasson, 8.3.2023 kl. 22:56

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sammála þér og er viss um að Guðmundur hefur aldrei lotið svo lágt.

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2023 kl. 23:35

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, svo er líka spurning um stjórn HSÍ, hvernig móral eru þeir að bjóða uppá?

Svo verður að taka það inn í myndina að liðið og þjálfarar höfðu ekki langan tíma í að undirbúa leikinn.

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 9.3.2023 kl. 14:32

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sæll og blessaður Helgi og þakka þér fyrir innlitið.  Það er alveg rétt hjá þér að það verður að taka "móralinn" sem HSÍ býður upp á.  Þó svo að liðið og þjálfarinn hafi ekki fengið langan tíma til að undirbúa sig, þá verður nú að segjast að þetta lið hefur spilað saman í mörg ár og þjálfararnir voru innanborðs áður svo það getur ekki veriðnein afsökun fyrir mjög svo slakri frammistöðu og meirihluti liðsins er að spila í bestu liðum í heimi.....

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum

Jóhann Elíasson, 9.3.2023 kl. 14:44

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll aftur Jóhann, Jú það er rétt sem þú skrifar, þeir spiluðu eins og neðrideildar lið. Vonandi verður eitthvað gert í því að laga þetta?

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 9.3.2023 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband