NÚ ER ESB BYRJAÐ AÐ "SNURPA" OG ÞÁ MEGA EFTA-LÖNDIN FARA AÐ VARA SIG......

Fyrst verður að útskýra þessa fyrirsögn.  Það er talað um það  þegar skip er á nótaveiðum að fyrst er nótinni kastað utan um torfuna að því loknu er nótinni "lokað" (að neðan) og þá er talað um að verið sé að "SNURPA", þá er fiskurinn lokaður inni í nót inni og síðan er nótin dregin inn (talað er um að "þurrka" nótina) þar til fiskurinn er kominn í "pokann" og að lokum er fiskurinn tekinn um borð (yfirleitt er um smágerðan fisk að ræða, eins og til dæmis loðnu og er honum dælt um borð.  Svona er hægt að líkja vinnubrögðum ESB gagnvart EFTA-ríkjunum.  Þetta fór rólega af stað en hefur verið augljósara núna seinni árin og nú eru forráðamenn ESB ekkert að fara í felur með sem er í gangi. Það keyrði alveg um þverbak ÞEGAR UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍSLANDS LEGGUR FRAM "FRUMVARP" ÞESS EFNIS AÐ LÖG FRÁ ESB SÉU "ÆÐRI" ÍSLENSKUM LÖGUM.  Ætla þingmenn á ALÞINGI ÍSLENDINGA virkilega að láta þetta ganga yfir sig þegjandi og hljóðalaust svo ekki sé nú talað um FORSETA ALÞINGIS??  MÖRG FRUMVÖRPIN HAFA NÚ  FARIÐ Í GEGN Á ALÞINGI SEM EKKI HEFUR VERIÐ SÁTT UM HVORT BRYTU Í BÁGA VIÐ STJÓRNARSKRÁNA EN MEÐ ÞETTA FRUMVARP ER ENGINN VAFI........ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það fer um mig hrollur við þennan lestur Jóhann en þetta er staðan í dag,íslenska þjóðin flýtur sofandi að feigðarósi,eini sénsinn eru fallaskipti  og nótina rekur í skrúfuna.

Björn. (IP-tala skráð) 20.4.2023 kl. 11:07

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Björn, því miður er þetta svona og ef ég hefði kafað enn dýpra í þetta hefði það bara orðið til þess að málið yrði bara enn verra.  En Björn það er komið sumar og verðum við ekki bara að horfa björtum augum til framtíðarinnar og vona það besta?  Ég óska þér gleðilegs sumars og bestu þakkir fyrir veturinn og að sjálfsögðu óska ég þér alls hins besta í framtíðinni.  Það er sagt að  hver þjóð fái þá ríkisstjórn sem hún á skilið að fá, ég neita bara að trúa því að við eigum ekki skilið neitt skárra en það sem við höfum...... 

Jóhann Elíasson, 20.4.2023 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband