ÉG HEF EKKI SÉÐ AÐRA FJÖLMIÐLA SEGJA FRÁ ÞVÍ AÐ ÚKRAINA NOTI KLASASPRENGJUR..

Fyrir nokkrum dögum var ég að horfa á fréttir í Norska ríkissjónvarpinu (NRK) og þar var meðal annars viðtal við Úkraínska hermenn á vígstöðvunum í Austur Úkraínu og þar kom meðal annars fram að þeir beittu KLASASPRENGJUM þarna í aðgerðum sínum og það réttlættu þeir með því AÐ ÞAÐ VÆRI Í LAGI VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR ÆTTU Í STRÍÐI VIÐ SVO VONDA AÐILA.  En fyrst það eru Úkraínumenn sem nota KLASASPRENGJUR þá er SENNILEGA EKKI um STRÍÐSGLÆP að ræða.  En var ekki búist við að KLASASPRENGJURNAR yrðu notaðar fyrst var verið að senda Úkraínumönnum þær á annað borð???????


mbl.is Rússneskur stríðsfréttaritari látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hér er tvö nýleg dæmi:

https://www.visir.is/g/20232441861d/byrjadir-ad-nota-klasasprengjur

https://www.ruv.is/frettir/erlent/2023-07-21-ukrainumenn-byrjadir-ad-beita-klasasprengjum-388420

Ein skýring á þessu sem ég las einhversstaðar er að vegna skorts á öðrum skotfærum sé verið að senda Úkraínumönnum klasasprengjur. Það sé þá í rauninni verið að nota þær til að auka heildarframboð á skotfærum fyrir úkraínska herinn. Á sama tíma er tækifærið nýtt til að "tæma lagerinn" sem væri erfiðara að réttlæta ef það væri ekki undir þeim formerkjum að hjálpa Úkraínu að verjast innrás rússneska hersins. Það er gömul saga og ný að svæðisbundin stríð eru alltaf nýtt til að koma gömlum vopnum í lóg og "rýma lagerinn" fyrir nýrri og nútímalegri vopnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.7.2023 kl. 15:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þá veit ég það, þakka þér fyrir Guðmundur.  Joe Biden sagði það bara hreint út þegar hann var spurður að af hverju þeir væru að láta Úkraínumenn hafa KLASASPRENGJUR, þá var svarið: "Wee are out of ammination" (lausleg þýðing "Við erum skotfæralusir").............

Jóhann Elíasson, 23.7.2023 kl. 16:31

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þess má geta að Ísland hefur ásamt 110 öðrum ríkjum undirgengist alþjóðasamning um bann við klasasprengjum. Úkraína og Bandaríkin eru ekki á meðal þeirra.

83/2015: Lög um framkvæmd samnings um klasasprengjur | Lög | Alþingi

Convention on Cluster Munitions - Wikipedia

Guðmundur Ásgeirsson, 23.7.2023 kl. 16:43

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég hélt að í hernaði væri aðalmálið að láta andstæðinginn ekki vita hvaða vopn maður ætti! 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.7.2023 kl. 16:49

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki alltaf Sigurður. Stundum er tilgangurinn að sýna andstæðingnum hvað myndi mæta honum til að fæla hann frá því að gera árás. Þess vegna eru heræfingar oft haldnar fyrir opnum tjöldum.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.7.2023 kl. 18:16

6 identicon

Varnarher Vesturlanda (her Úkraínu) beitir klasasprengjum gegn innrásahernum. stríðsglæpahernum. Her fasistans Pútins beitti þeim í Harkív gegn óbreyttum borgurum. - Það er grundvallarmunur á beitingu vopna í vörn gegn líkum Hitlers og Stalíns og í sjálfsvörn. Eru ekki allir ærlegir menn með þett á hreinu?

EINAR S HALFDANARSON (IP-tala skráð) 23.7.2023 kl. 23:38

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Núna ég!!

Sigurður I B Guðmundsson, 24.7.2023 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband