ÞAÐ VAR NÚ SVOLÍTILL "HEPPNISSTIMPILL" YFIR ÞESSUM SIGRI.......

En ég get ekki tekið undir það að Walesverjar hafi verið BETRI.  "Stelpurnar okkar" virtust eiga í miklum erfiðleikum með að koma boltanum út úr og frá teignum en Wales stelpurnar "pressuðu" mjög ofarlega, sem kannski gerði það að verkum að þær voru svolítið berskjaldaðar fyrir hraðaupphlaupum en "stelpunum okkar" gekk illa að halda boltanum innan liðsins, þegar þær náðu honum sem gerði það að verkum að sóknirnar urðu fremur ómakvissar og runnu flesta út í sandinn.  En þær máttu eiga það að vörnin var alveg 100%.  Það er alveg ljóst að það er nokkuð margt sem þarf að laga fyrir Þjóðverjaleikinn og alveg á hreinu að það kemur ekki til með að hjálpa Íslenska liðinu að Sveindís verður ekki með......


mbl.is Erfitt að vera róleg þegar enginn vill boltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þessi úrslit hjálpa þeim örugglega mikið þegar þær mæta Þjóðverjum.

Þó það sé annað mál var gaman að sjá Gylfa aftur í boltanum. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.9.2023 kl. 10:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já sjálfsagt hjálpa þessi úrslit eitthvað en á mói kemur að Þjóðverjar TÖPUÐU sínum leik í gær og auk þess verða þær Þýsku á heimavelli og ég er ansi hræddur um að leikurinn verði MJÖG erfiður fyrir "stelpurnar okkar".  Kannski er hægt að líkja honum við að ætla að róa upp straumharða á....

Jóhann Elíasson, 23.9.2023 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband